{"id":26845,"date":"2023-12-19T12:00:33","date_gmt":"2023-12-19T12:00:33","guid":{"rendered":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/?p=26845"},"modified":"2023-12-20T13:45:33","modified_gmt":"2023-12-20T13:45:33","slug":"agust-thor-arnason-in-memoriam","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/volume-18-no-2-2023\/agust-thor-arnason-in-memoriam\/","title":{"rendered":"\u00c1g\u00fast \u00de\u00f3r \u00c1rnason &#8211; In Memoriam"},"content":{"rendered":"\n\n\n\t<div class=\"dkpdf-button-container\" style=\" text-align:right \">\n\n\t\t<a class=\"dkpdf-button\" href=\"\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/26845?pdf=26845\" target=\"_blank\"><span class=\"dkpdf-button-icon\"><i class=\"fa fa-file-pdf-o\"><\/i><\/span> <\/a>\n\n\t<\/div>\n\n\n\n\n\n<p style=\"text-align: justify;\">\u00c1g\u00fast \u00de\u00f3r \u00c1rnason skipar s\u00e9rstakan sess vi\u00f0 lagadeild H\u00e1sk\u00f3lans \u00e1 Akureyri en hann l\u00e9st fyrir aldur fram vori\u00f0 2019 eftir skamvinn veikindi. Hann var \u00ed h\u00f3pi \u00feeirra sem komu fyrst a\u00f0 lagan\u00e1mi vi\u00f0 sk\u00f3lann en \u00fea\u00f0 h\u00f3fst \u00e1ri\u00f0 2003. \u00cd \u00fev\u00ed f\u00f3lst brautry\u00f0jendastarf sem kraf\u00f0ist b\u00e6\u00f0i \u00ferautseigju og eldm\u00f3\u00f0s. Og af hvoru tveggja haf\u00f0i \u00c1g\u00fast \u00de\u00f3r n\u00f3g. Hann haf\u00f0i alla t\u00ed\u00f0 brennandi \u00e1huga \u00e1 l\u00f6gfr\u00e6\u00f0i, einkum og s\u00e9r \u00ed lagi r\u00e9ttarheimspeki og stj\u00f3rnskipunarr\u00e9tti og haf\u00f0i dvali\u00f0 langdv\u00f6lum \u00ed \u00de\u00fdskalandi vi\u00f0 n\u00e1m m.a. \u00ed heimspeki, l\u00f6gfr\u00e6\u00f0i og stj\u00f3rnm\u00e1lafr\u00e6\u00f0i. \u00de\u00fdskaland st\u00f3\u00f0 honum \u00e1vallt n\u00e6rri en hann fylgdist daglega me\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0m\u00e1laumr\u00e6\u00f0u \u00fear \u00ed landi me\u00f0 lestri helstu bla\u00f0a.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">\u00c1g\u00fast \u00de\u00f3r kom v\u00ed\u00f0a vi\u00f0 \u00e1 sinni starfs\u00e6vi og honum var einkar lagi\u00f0 a\u00f0 ry\u00f0ja n\u00fdjar brautir. Til a\u00f0 mynda vann hann \u00e1samt fleirum \u00f6tullega a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 koma \u00e1 f\u00f3t Mannr\u00e9ttindaskrifstofu \u00cdslands \u00e1 10. \u00e1ratugnum og s\u00ed\u00f0ar Reykjav\u00edkurakadem\u00edunni. Seinna, e\u00f0a upp \u00far aldam\u00f3tum, fluttist hann til Akureyrar til starfa vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3lann. \u00deegar nor\u00f0ur var komi\u00f0 t\u00f3k vi\u00f0 a\u00f0 skipuleggja BA-n\u00e1m vi\u00f0 n\u00fdstofna\u00f0a lagadeild en fyrstu nemendurnir innritu\u00f0ust \u00ed hana \u00e1ri\u00f0 2003. \u00c1g\u00fast \u00de\u00f3r haf\u00f0i sk\u00fdra s\u00fdn \u00e1 hvernig \u00fea\u00f0 skyldi gert. Mikilv\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 nemendur \u00f6\u00f0lu\u00f0ust g\u00f3\u00f0an fr\u00e6\u00f0ilegan grunn \u00ed l\u00f6gfr\u00e6\u00f0i strax \u00ed BA-n\u00e1mi og af \u00feeim s\u00f6kum eru kennd n\u00e1mskei\u00f0 vi\u00f0 lagadeild HA eins og r\u00f3marr\u00e9ttur, evr\u00f3psk r\u00e9ttarsaga, og samanbur\u00f0ar\u00e9ttur auk \u00feess sem r\u00edk \u00e1hersla var og er l\u00f6g\u00f0 \u00e1 kennilega l\u00f6gfr\u00e6\u00f0i. \u00de\u00e1 var hann \u00f6tull talsma\u00f0ur heimskautar\u00e9ttar og vann, \u00e1samt fleirum, a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 koma meistaran\u00e1mi \u00ed heimskautar\u00e9tti \u00e1 laggirnar vi\u00f0 lagadeildina sem var n\u00fdjung \u00e1 \u00feeim t\u00edma \u00e1 heimsv\u00edsu og er ekki kenndur vi\u00f0 a\u00f0ra sk\u00f3la. \u00c1 \u00feeim t\u00edma var hugtaki\u00f0 heimskautar\u00e9ttur \u00f3\u00feekkt en hefur \u00f6\u00f0last sess \u00ed fr\u00e6\u00f0aheiminum. Til marks um framlag \u00c1g\u00fasts \u00de\u00f3rs til heimskautar\u00e9ttar, hefst fyrsti kafli handb\u00f3kar Routledge um heimskautar\u00e9tt, <em>The Routledge Handbook of Polar Law (2023) <\/em>um s\u00f6gu og st\u00f6\u00f0u heimskautar\u00e9ttar \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 nefna hann \u00e1 nafn.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">\u00deeir sem kynntust \u00c1g\u00fasti \u00de\u00f3r \u00e1ttu\u00f0u sig flj\u00f3tt \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e1ir st\u00f3\u00f0ust honum sn\u00faning \u00feegar kom a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 byggja upp tengslanet og vi\u00f0halda \u00fev\u00ed. \u00dear var hann eins og fiskur \u00ed vatni. \u00deessa h\u00e6fileika n\u00fdtti hann til g\u00f3\u00f0ra verka en hann var \u00f3\u00fereytandi a\u00f0 f\u00e1 fr\u00e6\u00f0imenn til Akureyrar til a\u00f0 kenna, halda fyrirlestra e\u00f0a tala \u00e1 r\u00e1\u00f0stefnum og styrkja um lei\u00f0 lagan\u00e1m vi\u00f0 sk\u00f3lann. Fr\u00e6g eru l\u00f6gfr\u00e6\u00f0itorgin en \u00feeim h\u00e9lt hann \u00fati einu sinni \u00ed viku \u00e1 veturna me\u00f0 a\u00f0d\u00e1unarver\u00f0ri \u00ferautseigju en hann skipulag\u00f0i \u00f3f\u00e1ar r\u00e1\u00f0stefnur, m\u00e1l\u00feing og a\u00f0ra vi\u00f0bur\u00f0i, m.a. hin fr\u00e6gu \u201eheimspekikaffi\u201c \u00e1 Bl\u00e1u k\u00f6nnunni. \u00a0\u00dea\u00f0 m\u00e1 \u00fev\u00ed me\u00f0 sanni segja a\u00f0 \u00c1g\u00fast \u00de\u00f3r hafi l\u00e1ti\u00f0 til s\u00edn taka \u00ed samf\u00e9laginu. Ein s\u00ed\u00f0asta r\u00e1\u00f0stefnan sem hann st\u00f3\u00f0 a\u00f0 \u00e1samt fleirum var al\u00fej\u00f3\u00f0leg og haldin hausti\u00f0 2016 \u00ed H\u00e1sk\u00f3lanum \u00e1 Akureyri um stj\u00f3rnarskr\u00e1rm\u00e1l. \u00dear voru till\u00f6gur \u00fe\u00e1verandi stj\u00f3rnarmeirihluta til breytinga \u00e1 stj\u00f3rnarskr\u00e1nni helsta umr\u00e6\u00f0uefni\u00f0. Me\u00f0al fyrirlesara voru virtir \u00edslenskir og erlendir fr\u00e6\u00f0imenn, margir aldagamlir vinir hans, auk r\u00e1\u00f0herra og forseta \u00cdslands. \u00de\u00e1 s\u00e1 ma\u00f0ur hversu mikillar vir\u00f0ingar hann naut \u00ed s\u00ednum h\u00f3pi fyrir framlag sitt til stj\u00f3rnskipunarfr\u00e6\u00f0a.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">Raunar hafa f\u00e1ir l\u00e1ti\u00f0 sig stj\u00f3rnarskr\u00e1rm\u00e1l meira var\u00f0a en \u00c1g\u00fast \u00de\u00f3r ger\u00f0i. Hann var m.a. kj\u00f6rinn til setu \u00ed stj\u00f3rnlaganefnd en nefndin skila\u00f0i af s\u00e9r vi\u00f0amikilli sk\u00fdrslu \u00ed tveimur bindum \u00e1ri\u00f0 2011 \u00fear sem var a\u00f0 finna hugmyndir nefndarinnar um breytingar \u00e1 stj\u00f3rnarskr\u00e1 auk annars. \u00de\u00e1 lag\u00f0i hann \u00e1ri\u00f0 2012 \u00e1samt Sk\u00fala Magn\u00fassyni, \u00fe\u00e1 d\u00f3sent vi\u00f0 lagadeild H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands, fram heildst\u00e6\u00f0a \u00fattekt \u00e1 frumvarpi stj\u00f3rnlagar\u00e1\u00f0s til Al\u00feingis \u00ed jan\u00faar 2012, og t\u00f3k \u00fe\u00e1tt \u00ed opinberri umr\u00e6\u00f0u um m\u00e1lefni tengd stj\u00f3rnarskr\u00e1. \u00cd minningargrein sem Sk\u00fali skrifa\u00f0i um \u00c1g\u00fast \u00de\u00f3r vin sinn er s\u00fdn hans \u00e1 stj\u00f3rnskipunarfr\u00e6\u00f0in \u00feannig l\u00fdst: \u201eSem stj\u00f3rnskipunarfr\u00e6\u00f0ingur haf\u00f0i \u00c1g\u00fast dj\u00fapan skilning \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 stj\u00f3rnarskr\u00e1 ver\u00f0ur hvorki sm\u00e6ttu\u00f0 ni\u00f0ur \u00ed texta n\u00e9 lagareglur heldur er h\u00fan einnig grundv\u00f6llur f\u00e9lagslegs veruleika, framkv\u00e6mdar og sameiginlegrar reynslu \u00fej\u00f3\u00f0ar og \u00fearf a\u00f0 vera r\u00f6kr\u00e9tt framhald s\u00f6gu og samr\u00e6\u00f0u samf\u00e9lagsins um hvernig grunnmarkmi\u00f0um stj\u00f3rnskipunar ver\u00f0i sem best n\u00e1\u00f0 (svo notu\u00f0 s\u00e9u or\u00f0 \u00c1g\u00fasts sj\u00e1lfs).\u201c<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">\u00c1g\u00fast \u00de\u00f3r kenndi m.a. \u00a0stj\u00f3rnskipunarr\u00e9tt vi\u00f0 lagadeildina og gaf sig a\u00f0 ranns\u00f3knum um stj\u00f3rnarskr\u00e1rfestu en \u00ed \u00feeim kenningum m\u00e6ttust \u00e1hugi hans \u00e1 stj\u00f3rnarskr\u00e1m og mannr\u00e9ttindum og liggja eftir hann fr\u00e6\u00f0igreinar um \u00fea\u00f0 efni. Me\u00f0al \u00feeirra m\u00e1 nefna grein um l\u00fd\u00f0veldi, stj\u00f3rnarskr\u00e1 og \u00fej\u00f3\u00f0aratkv\u00e6\u00f0i auk greinar um l\u00fd\u00f0veldi\u00f0, stj\u00f3rnskipan og st\u00f6\u00f0u forseta sem birtust \u00ed L\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingi \u00e1ri\u00f0 2010 og 2011. Hann skrifa\u00f0i grein um J\u00f3n Sigur\u00f0sson og stj\u00f3rnskipun \u00cdslands sem birtist \u00ed Andvara \u00e1ri\u00f0 2001 auk b\u00f3karkafla \u00e1 ensku \u00e1ri\u00f0 2011 \u00ed riti til hei\u00f0urs Gu\u00f0mundi Alfre\u00f0ssyni en greinin var um stj\u00f3rnarskr\u00e1rfestu \u00e1 \u00cdslandi og hlutverk og st\u00f6\u00f0u forseta \u00cdslands. \u00de\u00e1 skrifa\u00f0i hann um samband r\u00edkis og kirkju \u00ed sk\u00fdrslu stj\u00f3rnlaganefndar \u00e1ri\u00f0 2011 auk \u00feess a\u00f0 koma a\u00f0 skrifum um erlenda stj\u00f3rnskipun og stj\u00f3rnskipunarhugmyndir. Me\u00f0al annarra greina m\u00e1 nefna \u201eStj\u00f3rnarskr\u00e1rfesta: grundv\u00f6llur l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isins\u201c sem birtist \u00ed Sk\u00edrni \u00e1ri\u00f0 1999 sem er afar g\u00f3\u00f0 greining \u00e1 stj\u00f3rnarskr\u00e1rfestu og mikilv\u00e6gi hennar \u00ed stj\u00f3rnskipunarr\u00e9tti. \u00de\u00e1 m\u00e1 \u00e9g til me\u00f0 a\u00f0 nefna a\u00f0 \u00d3lafur J\u00f3hannesson var \u00ed s\u00e9rst\u00f6kum metum hj\u00e1 \u00c1g\u00fasti \u00de\u00f3r en hann \u00e1tti s\u00e9r \u00feann draum a\u00f0 koma \u00e1 f\u00f3t stofnun vi\u00f0 lagadeild kennda vi\u00f0 \u00d3laf.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">S\u00ed\u00f0asta framlag hans \u00e1 fr\u00e6\u00f0asvi\u00f0inu var mikilsvert en \u00fea\u00f0 var b\u00f3k sem hann ritst\u00fdr\u00f0i \u00e1samt Catherine Dupr\u00e9 um endursko\u00f0un stj\u00f3rnarskr\u00e1r \u00e1 \u00cdslandi, sem Routledge gaf \u00fat \u00e1ri\u00f0 2021: <em>Icelandic constitutional reform: people, processes, politics.<\/em> A\u00f0 henni vann hann fram \u00ed andl\u00e1ti\u00f0<em>.<\/em> \u00dear er a\u00f0 finna greinar eftir \u00fdmsa fr\u00e6\u00f0imenn um endursko\u00f0un stj\u00f3rnarskr\u00e1r og \u00fea\u00f0 ferli sem h\u00f3fst eftir hrun. \u00dear \u00e1 me\u00f0al grein eftir \u00c1g\u00fast \u00de\u00f3r og Cathreine Dupr\u00e9 \u00fear sem hann veltir fyrir s\u00e9r nau\u00f0syn endursko\u00f0unar \u00e1 stj\u00f3rnarskr\u00e1. Greinin byggir \u00e1 samtali \u00feeirra tveggja \u00fear sem honum gafst ekki t\u00f3m til a\u00f0 skrifa hana eins og \u00fea\u00f0 er or\u00f0a\u00f0 \u00ed form\u00e1la a\u00f0 henni. Me\u00f0al \u00feess sem \u00c1g\u00fast \u00de\u00f3r taldi mikilv\u00e6gt a\u00f0 koma \u00e1 framf\u00e6ri var a\u00f0 \u00fe\u00f3 a\u00f0 l\u00fd\u00f0veldisstj\u00f3rnarskr\u00e1in v\u00e6ri ekki fullkomin hef\u00f0i h\u00fan sanna\u00f0 gildi sitt \u00ed fj\u00e1rm\u00e1lahruninu 2008, og \u00fev\u00ed v\u00e6ri engin nau\u00f0syn \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 skipta henni \u00fat fyrir n\u00fdja. Ekki hef\u00f0u veri\u00f0 f\u00e6r\u00f0 fulln\u00e6gjandi r\u00f6k fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 efna til heildarendursko\u00f0unar \u00e1 stj\u00f3rnarskr\u00e1 en \u00fea\u00f0 s\u00fdndi sig m.a. a\u00f0 ekki v\u00e6ri samsta\u00f0a um nau\u00f0syn \u00feess \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1laflokkunum. \u00de\u00e1 benti hann \u00e1 a\u00f0 r\u00f3tt\u00e6kar breytingar \u00e1 stj\u00f3rnarskr\u00e1m ver\u00f0i vi\u00f0 afar \u00f3venjulegar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur \u00ed samf\u00e9laginu, sem nefnt hefur veri\u00f0 stj\u00f3rnarskr\u00e1rstund, en h\u00e9r \u00e1 landi hafi h\u00fan a\u00f0eins veri\u00f0 ein, \u00ed a\u00f0draganda l\u00fd\u00f0veldisstofnunarinnar \u00e1ri\u00f0 1944. \u00cd tilefni af \u00fatg\u00e1fu b\u00f3karinnar var haldin rafr\u00e6n r\u00e1\u00f0stefna \u00c1g\u00fasti \u00de\u00f3r til hei\u00f0urs \u00fear sem margir greinah\u00f6fundar komu fram, \u00fear \u00e1 me\u00f0al Gu\u00f0ni Th. J\u00f3hannesson, forseti \u00cdslands og Katr\u00edn Jakobsd\u00f3ttir, fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">H\u00e9r hef \u00e9g raki\u00f0 stuttlega h\u00f6fundarverk \u00c1g\u00fasts \u00de\u00f3rs \u00e1 svi\u00f0i stj\u00f3rnskipunarr\u00e9ttar en hann l\u00e9t einnig a\u00f0 s\u00e9r kve\u00f0a \u00e1 svi\u00f0i mannr\u00e9ttinda eins og st\u00f6rf hans tengd Mannr\u00e9ttindaskrifstofu \u00cdslands bera vott um.\u00a0 Hva\u00f0 sj\u00e1lfa mig var\u00f0ar og vinskap okkar \u00fe\u00e1 l\u00fdsir honum e.t.v. best a\u00f0 \u00feegar hann haf\u00f0i ve\u00f0ur af \u00e1huga m\u00ednum \u00e1 mannr\u00e9ttindum fyrir um \u00ferj\u00e1t\u00edu \u00e1rum setti hann sig \u00ed samband vi\u00f0 mig og hvatti \u00f3spart til d\u00e1\u00f0a en \u00fe\u00e1 \u00feekktumst vi\u00f0 ekkert. Ekki lei\u00f0 \u00e1 l\u00f6ngu uns hann haf\u00f0i fengi\u00f0 manni eitthvert verkefni og tengt vi\u00f0 virta fr\u00e6\u00f0imenn \u00e1 \u00fev\u00ed svi\u00f0i. Upp \u00far \u00fev\u00ed \u00fer\u00f3a\u00f0ist d\u00fdrm\u00e6tur vinskapur sem aldrei bar skugga \u00e1. Hann haf\u00f0i einstakt inns\u00e6i, var aldrei fyrirsj\u00e1anlegur og kom alltaf me\u00f0 \u00f3v\u00e6nt sj\u00f3narhorn \u00e1 hlutina sem olli \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 var ekki bara gott a\u00f0 leita til hans heldur nau\u00f0synlegt \u00feegar miki\u00f0 l\u00e1 vi\u00f0. Og \u00e9g var sannarlega ekki ein um \u00fea\u00f0. Hann var \u00f6rl\u00e1tur \u00e1 t\u00edma sinn, f\u00f3r hratt yfir og oft var erfitt a\u00f0 fylgja honum eftir og \u00e1tta sig \u00e1 \u00fev\u00ed hvert f\u00f6rinni var heiti\u00f0. Manni l\u00e6r\u00f0ist samt a\u00f0 \u00fea\u00f0 var alltaf hugsun \u00ed \u00fev\u00ed sem hann ger\u00f0i og ekki dvali\u00f0 \u00ed grunnu lauginni. \u00dea\u00f0 var \u00fev\u00ed sannarlega \u00f3v\u00e6nt og \u00e1n\u00e6gjulegt a\u00f0 lei\u00f0ir okkar skyldu liggja aftur saman \u00e1ri\u00f0 2014 \u00feegar \u00e9g r\u00e9\u00f0st til starfa vi\u00f0 lagadeildina. Og hann kynnti mig fyrir samf\u00e9laginu fyrir nor\u00f0an sem var \u00f3metanlegt, t\u00f3k mig meira a\u00f0 segja me\u00f0 \u00e1 R\u00f3tar\u00fdfundi svo f\u00e1tt eitt s\u00e9 tali\u00f0. S\u00ed\u00f0asta verkefni\u00f0 sem hann ba\u00f0 mig um a\u00f0 vinna voru greinarskrif um au\u00f0linda\u00e1kv\u00e6\u00f0i \u00ed stj\u00f3rnarskr\u00e1 \u00ed \u00e1\u00f0urnefndri b\u00f3k hans og Catherine Dupr\u00e9, sem \u00e9g og ger\u00f0i, enda ekki um anna\u00f0 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. \u00c9g \u00e1 \u00c1g\u00fasti \u00de\u00f3r margt a\u00f0 \u00feakka eins og svo \u00f3tal fleiri.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">\u00c1g\u00fast \u00de\u00f3r gegndi \u00fdmsum hlutverkum vi\u00f0 lagadeildina, var verkefnisstj\u00f3ri, a\u00f0j\u00fankt og brautarstj\u00f3ri. N\u00fa \u00e1 tuttugu \u00e1ra afm\u00e6li deildarinnar er vi\u00f0 h\u00e6fi a\u00f0 staldra vi\u00f0 og minnast hans og \u00f3metanlegs framlags hans til lagan\u00e1ms vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3lann \u00e1 Akureyri. S\u00fdn hans og tr\u00fa \u00e1 yngstu lagadeild \u00e1 \u00cdslandi var \u00f3svikin og gr\u00ed\u00f0arlega mikilv\u00e6g \u00ed \u00fev\u00ed uppbyggingarstarfi sem hefur \u00e1tt s\u00e9r sta\u00f0 allar g\u00f6tur fr\u00e1 stofnun hennar. Fyrir \u00fea\u00f0 \u00e1 hann \u00feakkir skili\u00f0.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c1g\u00fast \u00de\u00f3r \u00c1rnason skipar s\u00e9rstakan sess vi\u00f0 lagadeild H\u00e1sk\u00f3lans \u00e1 Akureyri en hann l\u00e9st fyrir aldur fram vori\u00f0 2019 eftir skamvinn veikindi. Hann var \u00ed h\u00f3pi \u00feeirra sem komu fyrst a\u00f0 lagan\u00e1mi vi\u00f0 sk\u00f3lann en \u00fea\u00f0 h\u00f3fst \u00e1ri\u00f0 2003. \u00cd \u00fev\u00ed f\u00f3lst brautry\u00f0jendastarf sem kraf\u00f0ist b\u00e6\u00f0i \u00ferautseigju og eldm\u00f3\u00f0s. Og af hvoru tveggja haf\u00f0i \u00c1g\u00fast &hellip; <a href=\"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/volume-18-no-2-2023\/agust-thor-arnason-in-memoriam\/\" class=\"more-link\">Continue reading <span class=\"screen-reader-text\">\u00c1g\u00fast \u00de\u00f3r \u00c1rnason &#8211; In Memoriam<\/span> <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":613,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_exactmetrics_skip_tracking":false,"_exactmetrics_sitenote_active":false,"_exactmetrics_sitenote_note":"","_exactmetrics_sitenote_category":0,"footnotes":""},"categories":[2226,2431],"tags":[2445],"coauthors":[2150],"class_list":["post-26845","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-volume-18-no-2-2023","category-in-memoriam-editor-review","tag-agust-thor-arnason"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/26845","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/users\/613"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=26845"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/26845\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":26847,"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/26845\/revisions\/26847"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=26845"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=26845"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=26845"},{"taxonomy":"author","embeddable":true,"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/coauthors?post=26845"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}