{"id":259,"date":"2014-05-07T17:02:36","date_gmt":"2014-05-07T17:02:36","guid":{"rendered":"http:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/?p=259"},"modified":"2016-03-30T22:00:52","modified_gmt":"2016-03-30T22:00:52","slug":"framlag-mikaels-m-karlssonar-til-heimspeki-a-islandi-og-til-haskolans-a-akureyri","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/09-2\/c64-conference-paper\/framlag-mikaels-m-karlssonar-til-heimspeki-a-islandi-og-til-haskolans-a-akureyri\/","title":{"rendered":"Framlag Mikaels M. Karlssonar til heimspeki \u00e1 \u00cdslandi og til H\u00e1sk\u00f3lans \u00e1 Akureyri"},"content":{"rendered":"\n\n\n\t<div class=\"dkpdf-button-container\" style=\" text-align:right \">\n\n\t\t<a class=\"dkpdf-button\" href=\"\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/259?pdf=259\" target=\"_blank\"><span class=\"dkpdf-button-icon\"><i class=\"fa fa-file-pdf-o\"><\/i><\/span> <\/a>\n\n\t<\/div>\n\n\n\n\n\n<p style=\"text-align: justify;\">\n<p style=\"text-align: justify;\">Mikael M. Karlsson, pr\u00f3fessor \u00ed heimspeki vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands, hefur me\u00f0 st\u00f6rfum s\u00ednum marka\u00f0 dj\u00fap spor \u00ed s\u00f6gu i\u00f0kunar heimspeki \u00e1 \u00cdslandi og s\u00f6gu H\u00e1sk\u00f3lans \u00e1 Akureyri. Sem heimspekikennari hefur hann \u00ed 40 \u00e1r opna\u00f0 nemendum s\u00ednum n\u00fdjar lei\u00f0ir b\u00e6\u00f0i \u00ed hugsun og verki og sem fr\u00e6\u00f0ima\u00f0ur hefur hann sami\u00f0 fj\u00f6lda fram\u00farskarandi verka sem um leika kerfisbundnir \u00fer\u00e6\u00f0ir. Sem akadem\u00edskur borgari hefur hann veri\u00f0 \u00f6tull vi\u00f0 a\u00f0 koma \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0asamskiptum og hann var mikilvirkur frumkv\u00f6\u00f0ull og lei\u00f0togi \u00ed starfi fyrsta deildarforseta f\u00e9lagsv\u00edsinda- og lagadeildar H\u00e1sk\u00f3lans \u00e1 Akureyri. \u00cd \u00fev\u00ed starfi lag\u00f0i hann grunninn a\u00f0 gr\u00f3skumiklu akadem\u00edsku samf\u00e9lagi me\u00f0 al\u00fej\u00f3\u00f0legum bl\u00e6.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">\n<p style=\"text-align: justify;\">\n<p style=\"text-align: justify;\">\n<p style=\"text-align: justify;\">\n<hr \/>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">Mikael M. Karlsson er holdgervingur or\u00f0atilt\u00e6kisins \u201emargur er kn\u00e1r \u00fe\u00f3tt hann s\u00e9 sm\u00e1r\u201c. \u00deessi l\u00e1gvaxni, gla\u00f0v\u00e6ri og ge\u00f0\u00feekki ma\u00f0ur b\u00fdr yfir \u00f3gnarkrafti, eldheitum hugsj\u00f3num og umfram allt yfirbur\u00f0a sk\u00f6rpum og greinandi huga. \u00c9g tel mig muna greinilega eftir \u00fev\u00ed \u00feegar \u00e9g s\u00e1 Mike fyrst, \u00fe\u00f3 \u00fea\u00f0 s\u00e9u l\u00edklega ein 27 \u00e1r s\u00ed\u00f0an. \u00dea\u00f0 var \u00ed fyrstu kennslustund hj\u00e1 n\u00fdjum kennara \u00feegar \u00e9g haf\u00f0i n\u00fdhafi\u00f0 heimspekin\u00e1m vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. \u00de\u00f3tt a\u00f0st\u00e6\u00f0urnar hafi veri\u00f0 hversdagslegar er minningin sterk \u00fev\u00ed Mike var svo \u00f3l\u00edkur \u00f6llum kennurum sem \u00e9g haf\u00f0i kynnst fram a\u00f0 \u00fev\u00ed. Hann arka\u00f0i um og r\u00e6ddi af \u00e1kafa um heimspekileg efni sem \u00e9g haf\u00f0i ekki einu sinni vita\u00f0 a\u00f0 voru til, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 a\u00f0 \u00feau skiptu m\u00e1li, en hann ger\u00f0i \u00fea\u00f0 me\u00f0 \u00feeim h\u00e6tti a\u00f0 vi\u00f0 nemendur hans dr\u00f3gumst til hans og neyddumst til a\u00f0 gl\u00edma vi\u00f0 g\u00e1tur heimspekinnar me\u00f0 honum. \u00dea\u00f0 var einhvern veginn engrar undankomu au\u00f0i\u00f0. \u00cd t\u00edmum hj\u00e1 Mike og \u00ed samskiptum vi\u00f0 hann runnu \u00ed fyrsta sinn upp fyrir m\u00e9r grundvallarspurningar sem ekki ur\u00f0u sv\u00e6f\u00f0ar eftir a\u00f0 \u00fe\u00e6r h\u00f6f\u00f0u einu sinni vakna\u00f0.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">Me\u00f0al \u00f3gleymanlegra n\u00e1mskei\u00f0a Mikes sem koma upp \u00ed hugann n\u00fa \u00e1ratugum s\u00ed\u00f0ar er m\u00e1lstofa um k\u00ednverska heimspeki, n\u00e1mskei\u00f0 um fornaldarheimspeki sem hann kenndi \u00e1samt \u00deorsteini Gylfasyni, og lei\u00f0s\u00f6gn hans vi\u00f0 lokaverkefni, sem \u00fat af fyrir sig jafna\u00f0ist \u00e1 vi\u00f0 einkaseminar. Um lei\u00f0 og Mike smita\u00f0i af \u00e1huga s\u00ednum var hann fyrirmynd um \u00fea\u00f0 hvernig h\u00e6gt er a\u00f0 r\u00f6kr\u00e6\u00f0a skipulega um heimspekileg efni \u00e1 n\u00e1kv\u00e6man, gagnr\u00fdninn og skapandi h\u00e1tt en \u00fe\u00f3 \u00feannig a\u00f0 h\u00famorinn s\u00e9 aldrei langt undan. Stundum virtist hann reyndar n\u00e1nast \u00ed fyrirr\u00fami. Kennsla Mikes var eins langt fr\u00e1 alv\u00f6rugefnum, \u00edbyggnum b\u00f3karlex\u00edum um s\u00f6gu heimspekilegra hugmynda og mest m\u00e1tti vera. Hann var sj\u00e1lfur heilla\u00f0ur af vi\u00f0fangsefninu og hreif nemendur \u00fear af lei\u00f0andi me\u00f0 s\u00e9r. Hann setti einnig upp skipulag sem kraf\u00f0ist \u00feess a\u00f0 nemendur v\u00e6ru virkir \u00ed n\u00e1minu. Heimspeki me\u00f0 Mike var opin og frj\u00e1lsleg um lei\u00f0 og h\u00fan var \u00f6gu\u00f0, n\u00e1kv\u00e6m og krefjandi. H\u00fan bretti upp ermarnar og t\u00f3kst \u00e1 vi\u00f0 \u00ferautir s\u00ednar \u00ed \u00feeirri vissu a\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gefast ekki upp og sko\u00f0a \u00ed \u00feaula fengist sk\u00fdrari s\u00fdn, me\u00f0 f\u00e6rri m\u00f3ts\u00f6gnum og minni \u00feoku. \u00dea\u00f0 var einhvern veginn alltaf a\u00f0 birta til \u00ed heimspeki me\u00f0 Mike og hann snerti l\u00edf okkar nemendanna \u00feannig a\u00f0 vi\u00f0 ur\u00f0um aldrei aftur s\u00f6m.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">\u00deessi nostalg\u00edska upprifjun m\u00edn \u00e1 pers\u00f3nulegri reynslu af fyrstu kynnum af Mike \u00e1 einkar vel vi\u00f0 \u00ed dag \u00feegar vi\u00f0 h\u00f6ldum upp \u00e1 sj\u00f6tugsafm\u00e6li hans, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00ed lj\u00f3si hennar er au\u00f0veldara a\u00f0 skilja hvers vegna svo miki\u00f0 hefur skapast \u00ed kringum Mike \u00ed gegnum t\u00ed\u00f0ina og sprotti\u00f0 upp af hans v\u00f6ldum. Sem heimspekikennari s\u00e1\u00f0i hann fr\u00e6jum og opna\u00f0i dyr, b\u00e6\u00f0i \u00ed \u00f3eiginlegri og \u00e1\u00fereifanlegri merkingu. Undir \u00e1hrifum og lei\u00f0s\u00f6gn fr\u00e1 honum hafa sprotti\u00f0 heimspekileg fr\u00e6 nemenda hans vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands og m\u00f6rgum \u00feeirra hefur hann veitt \u00f3metanlega a\u00f0sto\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 komast \u00ed framhaldsn\u00e1m erlendis. Um \u00e1v\u00f6xt \u00feessara heimspekifr\u00e6ja vitnar me\u00f0 gl\u00e6silegum h\u00e6tti greinasafni\u00f0 <i>Heimspekimessa: Ritger\u00f0ir handa Mikael M. Karlssyni pr\u00f3fessor sextugum<\/i>, sem gefi\u00f0 var \u00fat \u00ed kj\u00f6lfar m\u00e1l\u00feingsins <i>Mikj\u00e1lsmessa<\/i>, sem haldi\u00f0 var fyrir t\u00edu \u00e1rum honum til hei\u00f0urs.<a title=\"\" href=\"#_edn1\" name=\"_ednref1\">[1]<\/a> Sumir \u00feeirra sem \u00fear t\u00f6lu\u00f0u eru m\u00e6ttir aftur h\u00e9r \u00ed dag, t\u00edu \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar, til a\u00f0 hei\u00f0ra aftur vin sinn, l\u00e6rimeistara og kollega. A\u00f0rir hafa b\u00e6st \u00ed h\u00f3pinn.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">Anna\u00f0 sem sprotti\u00f0 hefur upp \u00ed kringum Mike \u00ed gegnum t\u00ed\u00f0ina eru al\u00fej\u00f3\u00f0leg tengsl. Fyrsta d\u00e6mi\u00f0 og \u00fea\u00f0 mikilv\u00e6gasta er a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u Mike sj\u00e1lfur, sem flutti hinga\u00f0 fyrir fj\u00f6rut\u00edu \u00e1rum \u00e1samt eiginkonu sinni, Barb\u00f6ru Nelson, fr\u00e1 Bandar\u00edkjunum og ger\u00f0ist \u00cdslendingur. Auglj\u00f3sara d\u00e6mi um al\u00fej\u00f3\u00f0lega tengingu er varla h\u00e6gt a\u00f0 \u00edmynda s\u00e9r. \u00cd \u00f6\u00f0ru lagi m\u00e1 nefna a\u00f0 Mike var snemma mj\u00f6g virkur \u00ed starfi sem sn\u00fdr a\u00f0 kennara- og nemendaskiptum, svo sem \u00ed gegnum ERASMUS og NORDPLUS, auk \u00feess a\u00f0 la\u00f0a hinga\u00f0 skiptikennara fr\u00e1 vesturheimi og kenna sj\u00e1lfur reglulega sem gistikennari erlendis. Me\u00f0 \u00feessu hefur skapast st\u00f3rt net al\u00fej\u00f3\u00f0legra tengsla \u00ed kringum Mike og um lei\u00f0 \u00ed kringum i\u00f0kun heimspeki \u00e1 \u00cdslandi. \u00cd \u00feri\u00f0ja lagi hefur Mike sem fyrr var geti\u00f0 veri\u00f0 \u00f3\u00fereytandi \u00ed gegnum t\u00ed\u00f0ina vi\u00f0 a\u00f0 hj\u00e1lpa \u00edslenskum h\u00e1sk\u00f3lanemum a\u00f0 komast \u00ed framhaldsn\u00e1m erlendis \u00ed h\u00e6sta g\u00e6\u00f0aflokki og halda \u00feannig \u00e1fram \u00e1 braut \u00feroska og skilningsleitar. S\u00e1 sem h\u00e9r talar er einn \u00feeirra sem standa \u00ed \u00e6varandi \u00feakkarskuld vi\u00f0 Mike af \u00feessum s\u00f6kum. \u00cd fj\u00f3r\u00f0a lagi hefur Mike sta\u00f0i\u00f0 fyrir fj\u00f6lm\u00f6rgum al\u00fej\u00f3\u00f0legum r\u00e1\u00f0stefnum h\u00e9r \u00e1 landi, n\u00e1nast upp \u00e1 eigin sp\u00fdtur e\u00f0a me\u00f0 a\u00f0sto\u00f0 nemenda sinna. \u00deessu byrja\u00f0i hann \u00e1 l\u00f6ngu \u00e1\u00f0ur en al\u00fej\u00f3\u00f0legt r\u00e1\u00f0stefnuhald var\u00f0 a\u00f0 jafn daglegu brau\u00f0i og n\u00fa er or\u00f0i\u00f0 og \u00e1\u00f0ur en s\u00fa \u00fej\u00f3nusta og \u00feekking sem byggst hefur upp \u00e1 \u00fev\u00ed svi\u00f0i h\u00e9rlendis kom til s\u00f6gunnar. Sumar \u00feessara r\u00e1\u00f0stefna hafa veri\u00f0 \u00e1 vegum akadem\u00edskra al\u00fej\u00f3\u00f0asamtaka sem Mike hefur sj\u00e1lfur teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed a\u00f0 st\u00fdra, svo sem <i>The<\/i> <i>International Association for Philosophy of Law and Social Philosophy <\/i>og <i>The<\/i> <i>Hume Society<\/i>.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">Eitt merkilegt einkenni \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0astarfi Mikes er a\u00f0 me\u00f0al \u00feeirra sem hann la\u00f0ar a\u00f0 og myndar tengsl vi\u00f0 eru heimspekingar sem eru ekki bara fr\u00e1b\u00e6rir hver \u00e1 s\u00ednu svi\u00f0i, heldur hafa beinl\u00ednis valdi\u00f0 straumhv\u00f6rfum og teljast til hinna \u201est\u00f3ru nafna\u201c. \u00cd huga minn koma n\u00f6fn eins og W.V.Quine, Donald Davidson og Christine Korsgaard, en \u00feeir eru miklu fleiri sem fylla \u00feennan flokk. \u00deessi sta\u00f0reynd segir s\u00edna s\u00f6gu um \u00fea\u00f0 \u00ed hva\u00f0a g\u00e6\u00f0aflokki Mike sj\u00e1lfur er sem heimspekingur og hva\u00f0 hann \u00e1l\u00edtur vera sitt \u201ebenchmark\u201c svo gripi\u00f0 s\u00e9 til g\u00e6\u00f0aslangurs.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">Hva\u00f0an kemur Mike allur \u00feessi kraftur og \u00e1hugi \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0astarfi? Oft heyrist tala\u00f0 um al\u00fej\u00f3\u00f0leg tengsl sem g\u00e6\u00f0av\u00edsi \u00ed h\u00e1sk\u00f3lastarfi og a\u00f0 sterk al\u00fej\u00f3\u00f0atengsl \u00e6ttu \u00fev\u00ed a\u00f0 vera keppikefli h\u00e1sk\u00f3la sem vilja l\u00e1ta taka sig alvarlega og nj\u00f3ta vir\u00f0ingar. \u00dever\u00f6fugt vi\u00f0 \u00feetta fullyr\u00f0i \u00e9g a\u00f0 \u00e1hugi Mikes \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0atengslum hafi aldrei stafa\u00f0 af einstaklingsl\u00f6ngun til a\u00f0 nj\u00f3ta vir\u00f0ingar og l\u00e1ta taka sig alvarlega, heldur einfaldlega af einsk\u00e6rum \u00e1huga hans \u00e1 a\u00f0 skapa gr\u00f3skumiki\u00f0 akadem\u00edskt umhverfi. R\u00e9ttnefnt akadem\u00edskt umhverfi \u00f6grar og kemur \u00e1 \u00f3vart \u00ed fj\u00f6lbreytni sinni og frelsi fr\u00e1 sta\u00f0bundnum kreddum, fr\u00e1 vi\u00f0jum vanans og fr\u00e1 \u00fer\u00f6ngs\u00fdni r\u00edkjandi hef\u00f0a \u00ed hugsun og breytni. \u00deannig hefur al\u00fej\u00f3\u00f0astarf Mikes veri\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e1gu \u201emann\u00fa\u00f0legrar og si\u00f0mennta\u00f0rar hnattv\u00e6\u00f0ingar\u201c, svo notu\u00f0 s\u00e9u or\u00f0 sem Nigel Dower vi\u00f0haf\u00f0i \u00e1 Mikj\u00e1lsmessu.<a title=\"\" href=\"#_edn2\" name=\"_ednref2\">[2]<\/a> Me\u00f0 starfi s\u00ednu \u00ed \u00fe\u00e1gu al\u00fej\u00f3\u00f0atengsla hefur Mike sannarlega unni\u00f0 \u00ferekvirki vi\u00f0 a\u00f0 skapa betri forsendur fyrir akadem\u00edska skilningsleit h\u00e9r \u00e1 landi, skilningsleit sem er \u00ed senn frj\u00e1ls og \u00f6gu\u00f0, \u00f6grandi og eflandi.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">Ekki ver\u00f0ur skili\u00f0 vi\u00f0 umr\u00e6\u00f0u um framlag Mikes til \u00edslenskrar heimspeki \u00e1n \u00feess a\u00f0 minnast \u00e1 \u00fe\u00e6r afur\u00f0ir sem eftir hann liggja \u00ed formi heimspekiritger\u00f0a, b\u00e6\u00f0i \u00e1 ensku og \u00edslensku, og spanna v\u00edtt svi\u00f0 ranns\u00f3kna \u00ed heimspeki, \u00fear me\u00f0 tali\u00f0 si\u00f0fr\u00e6\u00f0i, heimspekilega s\u00e1larfr\u00e6\u00f0i, l\u00f6gspeki, athafnafr\u00e6\u00f0i (e. action theory), v\u00edsindaheimspeki og fornaldarheimspeki. \u00cd greinasafninu <i>Heimspekimessu<\/i> er prentu\u00f0 umfangsmikil ritaskr\u00e1 Mikes fram til 2003.<a title=\"\" href=\"#_edn3\" name=\"_ednref3\">[3]<\/a> \u00c9g hef lesi\u00f0 g\u00f3\u00f0an hluta af \u00feeim ritger\u00f0um sem \u00fear eru taldar upp og g\u00e6ti \u00fat fr\u00e1 \u00fev\u00ed einu fullyrt a\u00f0 Mike er me\u00f0 allra bestu heimspekingum. Spurningarnar sem hann tekst \u00e1 vi\u00f0 eru alltaf dj\u00fapst\u00e6\u00f0ar og vandlega \u00fatf\u00e6r\u00f0ar, r\u00f6kf\u00e6rslur vanda\u00f0ar og efnist\u00f6k \u00feaulhugsu\u00f0. Og \u00fe\u00f3tt hann setji ekki fram heimspekikerfi er a\u00f0 finna kerfisbundna \u00fer\u00e6\u00f0i \u00ed heimspeki Mikes \u00feegar a\u00f0 er g\u00e1\u00f0, eins og Logi Gunnarsson rekur me\u00f0 sannf\u00e6randi h\u00e6tti \u00ed inngangsgrein <i>Heimspekimessu<\/i>: \u201eN\u00e1tt\u00fara og nau\u00f0synleg gildi \u2013 f\u00e1ein or\u00f0 um heimspeki Mikaels M. Karlssonar.\u201c<a title=\"\" href=\"#_edn4\" name=\"_ednref4\">[4]<\/a> \u00dev\u00ed mi\u00f0ur hefur Mike ekki birt nema tilt\u00f6lulega l\u00edtinn hluta af verkum s\u00ednum \u00ed t\u00edmaritum og b\u00f3kum en \u00e9g vil leyfa m\u00e9r a\u00f0 leggja fram \u00fe\u00e1 \u00f3sk, n\u00fa \u00e1 \u00feessari afm\u00e6lish\u00e1t\u00ed\u00f0, a\u00f0 heimurinn \u2013 e\u00f0a s\u00e1 hluti hans sem hefur \u00e1huga \u00e1 heimspeki \u00ed h\u00e6sta g\u00e6\u00f0aflokki \u2013 f\u00e1i a\u00f0 sj\u00e1 restina.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">Af \u00f6llu \u00fev\u00ed sem h\u00e9r hefur veri\u00f0 sagt \u00e6tti a\u00f0 vera lj\u00f3st a\u00f0 Mike er engum l\u00edkur og a\u00f0 \u00ed honum b\u00fdr orka og eldm\u00f3\u00f0ur til a\u00f0 byggja upp forsendur fyrir frj\u00f3u og spennandi akadem\u00edsku umhverfi sem togar f\u00f3lk \u00e1 vit skilningsleitar, \u00feekkingar og \u00feroska. \u00deessum eldm\u00f3\u00f0i fann hann n\u00fdjan farveg um sama leyti og bl\u00e1si\u00f0 var til Mikj\u00e1lsmessu til a\u00f0 fagna sextugsafm\u00e6li hans og og framlagi til \u00edslenskrar heimspeki \u00ed \u00ferj\u00e1t\u00edu \u00e1r. \u00deessi n\u00fdi farvegur var starf fyrsta forseta f\u00e9lagsv\u00edsinda- og lagadeildar H\u00e1sk\u00f3lans \u00e1 Akureyri, sem t\u00f3k til starfa hausti\u00f0 2003.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">Formleg \u00e1kv\u00f6r\u00f0un um stofnun f\u00e9lagsv\u00edsinda- og lagadeildar haf\u00f0i veri\u00f0 tekin \u00ed okt\u00f3ber 2002 og var Mike r\u00e1\u00f0inn \u00fe\u00e1 um veturinn e\u00f0a vori\u00f0 til a\u00f0 undirb\u00faa starfsemina. Til lei\u00f0sagnar haf\u00f0i hann sk\u00fdrslur tveggja undirb\u00faningsnefnda, a\u00f0ra um lagan\u00e1m og hina um f\u00e9lagsv\u00edsindan\u00e1m. \u00cd lagan\u00e1msnefndinni haf\u00f0i Mike sj\u00e1lfur seti\u00f0 \u00e1samt Gu\u00f0mundi Hei\u00f0ari Fr\u00edmannssyni, Gu\u00f0mundi Alfre\u00f0ssyni og Sigur\u00f0i L\u00edndal auk \u00feess sem \u00c1g\u00fast \u00de\u00f3r \u00c1rnason starfa\u00f0i me\u00f0 nefndinni, en \u00ed f\u00e9lagsv\u00edsindanefndinni voru sj\u00f6 einstaklingar sem \u00feegar st\u00f6rfu\u00f0u vi\u00f0 e\u00f0a tengdust H\u00e1sk\u00f3lanum \u00e1 Akureyri (Ingi R\u00fanar E\u00f0var\u00f0sson, Birgir Gu\u00f0mundsson, El\u00edn D\u00edanna Gunnarsd\u00f3ttir, Gr\u00e9tar \u00de\u00f3r Ey\u00fe\u00f3rsson, Hermann \u00d3skarsson, J\u00f3n Haukur Ingimundarson og Sigr\u00fan Sveinbj\u00f6rnsd\u00f3ttir). \u00cd lagan\u00e1mssk\u00fdrslunni var a\u00f0 finna till\u00f6gur a\u00f0 lagan\u00e1mi me\u00f0 s\u00e9rh\u00e6fingu \u00ed heimskautar\u00e9tti, r\u00e9ttarst\u00f6\u00f0u og stj\u00f3rns\u00fdslur\u00e9tti \u00f6rr\u00edkja og mannr\u00e9ttindum \u00ed s\u00f6gulegu og r\u00f6klegu samhengi. \u00cd f\u00e9lagsv\u00edsindask\u00fdrslunni var lagt til a\u00f0 bo\u00f0i\u00f0 yr\u00f0i upp \u00e1 B.A.-n\u00e1m \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsfr\u00e6\u00f0i (f\u00e9lags-, mann- og stj\u00f3rnm\u00e1lafr\u00e6\u00f0i), f\u00e9lagsr\u00e1\u00f0gj\u00f6f, s\u00e1larfr\u00e6\u00f0i, fj\u00f6lmi\u00f0la- og uppl\u00fdsingat\u00e6kni, Evr\u00f3pufr\u00e6\u00f0um, stj\u00f3rns\u00fdslu og bygg\u00f0afr\u00e6\u00f0um, kynjafr\u00e6\u00f0um, nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0afr\u00e6\u00f0um og n\u00e1m \u00ed al\u00fej\u00f3\u00f0legum hj\u00e1lpar- og mann\u00fa\u00f0arstofnunum. Til vi\u00f0b\u00f3tar \u00e1formunum sem reifu\u00f0 voru \u00ed sk\u00fdrslunum tveimur var r\u00e1\u00f0gert a\u00f0 eins \u00e1rs n\u00e1m \u00ed n\u00fat\u00edmafr\u00e6\u00f0i, sem vista\u00f0 haf\u00f0i veri\u00f0 \u00ed kennaradeild fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 h\u00f3f g\u00f6ngu s\u00edna hausti\u00f0 2000, myndi flytjast yfir \u00ed hina n\u00fdju f\u00e9lagsv\u00edsinda- og lagadeild.<a title=\"\" href=\"#_edn5\" name=\"_ednref5\">[5]<\/a><\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">H\u00e9r var Mike greinilega b\u00fainn a\u00f0 f\u00e6rast \u00ed fang miki\u00f0 verkefni, sem hann \u00e1tti eftir a\u00f0 helga alla s\u00edna krafta n\u00e6stu \u00ferj\u00fa til fj\u00f6gur \u00e1rin. Sk\u00fdrslurnar, einkum s\u00fa um f\u00e9lagsv\u00edsindan\u00e1mi\u00f0, b\u00e1ru \u00feess merki a\u00f0 vera samansafn \u00f3l\u00edkra hugmynda allmargra a\u00f0ila, nokkurs konar \u00f3skalisti. Eftir var a\u00f0 hanna \u00e1 grundvelli \u00feeirra n\u00e1msbrautir, sem g\u00e6tu sta\u00f0i\u00f0 undir s\u00e9r me\u00f0 n\u00e6gilegum nemendafj\u00f6lda mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 fj\u00f6lda n\u00e1mskei\u00f0a sem bj\u00f3\u00f0a \u00feyrfti upp \u00e1, auk \u00feess sem tryggja \u00feurfti vi\u00f0eigandi s\u00e9rfr\u00e6\u00f0i\u00feekkingu. T\u00edminn var naumur og Mike haf\u00f0i ekki haft miki\u00f0 r\u00e1\u00f0r\u00fam til a\u00f0 kynna s\u00e9r af eigin raun starfsemi H\u00e1sk\u00f3lans \u00e1 Akureyri og \u00fe\u00e6r hef\u00f0ir og venjur sem \u00fear h\u00f6f\u00f0u m\u00f3tast. H\u00e9r \u00feurfti gr\u00ed\u00f0arlegt \u00e1r\u00e6\u00f0i og svo sannarlega \u00feurfti a\u00f0 hugsa \u00fat fyrir rammann \u00e1 frj\u00f3an og skapandi h\u00e1tt. H\u00e9r m\u00e1 \u00fev\u00ed segja a\u00f0 hafi skapast s\u00f6guleg \u00fe\u00f6rf fyrir yfirbur\u00f0asnjallan ofurhuga \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 Mike sem var\u00f0 \u00feannig r\u00e9ttur ma\u00f0ur, \u00e1 r\u00e9ttum sta\u00f0, \u00e1 r\u00e9ttum t\u00edma.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">Til vi\u00f0b\u00f3tar \u00fev\u00ed hve fl\u00f3ki\u00f0 verkefni Mike haf\u00f0i \u00ed h\u00f6ndunum b\u00e6ttist a\u00f0 hann vissi ekki, fremur en a\u00f0rir, a\u00f0 \u00e1kv\u00f6r\u00f0uninni um stofnun n\u00fdrrar deildar, sem l\u00fdst var yfir af menntam\u00e1lar\u00e1\u00f0herra \u00e1 h\u00e1sk\u00f3lah\u00e1t\u00ed\u00f0 2003, myndi ekki fylgja nein fj\u00e1rframl\u00f6g fyrr en l\u00f6ngu eftir a\u00f0 starfsemin var hafin. \u00d3hj\u00e1kv\u00e6milegt var a\u00f0 \u00feessum br\u00e1\u00f0avexti h\u00e1sk\u00f3lans myndu fylgja fj\u00e1rhagslegir vaxtarverkir jafnvel \u00fe\u00f3tt snjallasta m\u00f6gulega lausn \u00e1 framkv\u00e6mdinni yr\u00f0i fundin.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">Ni\u00f0ursta\u00f0a Mikes var a\u00f0 draga \u00far n\u00e1msframbo\u00f0inu \u00ed f\u00e9lagsv\u00edsindum mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 till\u00f6gur sk\u00fdrslunnar og strauml\u00ednulaga \u00fea\u00f0 \u00feannig a\u00f0 \u00ferj\u00e1r meginl\u00ednur yr\u00f0u \u00ed bo\u00f0i: S\u00e1lfr\u00e6\u00f0i, fj\u00f6lmi\u00f0lafr\u00e6\u00f0i og samf\u00e9lags- og hag\u00fer\u00f3unarfr\u00e6\u00f0i. Fyrsta n\u00e1ms\u00e1ri\u00f0 myndi samanstanda a\u00f0 miklu leyti af n\u00e1mskei\u00f0um sem n\u00fdttust \u00f6llum l\u00ednum, svo sem \u00ed vinnulagi, gagnr\u00fdninni hugsun og a\u00f0fer\u00f0afr\u00e6\u00f0i, en \u00feetta \u00fe\u00fdddi jafnframt a\u00f0 st\u00f3r hluti n\u00e1mskei\u00f0anna \u00e1 fyrsta \u00e1ri n\u00fdttist einnig n\u00fat\u00edmafr\u00e6\u00f0in\u00e1minu. H\u00e9r m\u00e1 segja a\u00f0 Mike hafi hrint \u00ed framkv\u00e6md hugmyndinni um \u00fe\u00e1 almennu menntun \u00e1 grunnstigi sem kennd er vi\u00f0 frj\u00e1lsar listir e\u00f0a liberal arts. Jafnframt f\u00f3l \u00feetta skipulag \u00ed s\u00e9r a\u00f0 g\u00f3\u00f0 n\u00fdting fyrsta \u00e1rs n\u00e1mskei\u00f0anna skapa\u00f0i rekstararlegt svigr\u00fam fyrir f\u00e1mennari og s\u00e9rh\u00e6f\u00f0ari n\u00e1mskei\u00f0 \u00e1 s\u00ed\u00f0ari stigum n\u00e1msins. \u00de\u00f3tt f\u00e9lagsv\u00edsinda- og n\u00fat\u00edmafr\u00e6\u00f0in\u00e1mi\u00f0 vi\u00f0 HA hafi vissulega \u00fer\u00f3ast \u00e1fram s\u00ed\u00f0ustu t\u00edu \u00e1rin er \u00f3h\u00e6tt a\u00f0 fullyr\u00f0a a\u00f0 \u00feessi grundvallarhugsun hafi veri\u00f0 var\u00f0veitt og s\u00e9 enn h\u00f6f\u00f0 a\u00f0 lei\u00f0arlj\u00f3si. \u00cd m\u00ednum huga er einnig lj\u00f3st a\u00f0 h\u00fan var lykillinn a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gera fj\u00f6lbreytt og spennandi sta\u00f0arn\u00e1m \u00ed f\u00e9lagsv\u00edsindum rekstrarh\u00e6ft.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">\u00cd l\u00f6gfr\u00e6\u00f0inni h\u00e9lt Mike \u00e1fram a\u00f0 \u00fer\u00f3a hugmyndir undirb\u00faningsnefndarinnar, me\u00f0al annars me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 leita r\u00e1\u00f0a hj\u00e1 fj\u00f6lda heims\u00feekktra l\u00f6gfr\u00e6\u00f0inga fr\u00e1 \u00fdmsum Evr\u00f3pul\u00f6ndum og Bandar\u00edkjunum. Ni\u00f0ursta\u00f0an var\u00f0 s\u00fa a\u00f0 \u00e1 B.A.-stigi yr\u00f0i l\u00f6g\u00f0 \u00e1hersla \u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0ar\u00e9tt, samanbur\u00f0arl\u00f6gfr\u00e6\u00f0i, r\u00e9ttars\u00f6gu og r\u00e9ttarheimspeki, en \u00e1 meistarastigi yr\u00f0i komi\u00f0 \u00e1 tveggja \u00e1ra hagn\u00fdtu n\u00e1mi me\u00f0 \u00e1herslu \u00e1 kjarnagreinar \u00edslenskrar l\u00f6gfr\u00e6\u00f0i.<a title=\"\" href=\"#_edn6\" name=\"_ednref6\">[6]<\/a> N\u00e1mi\u00f0 haf\u00f0i strax mikla s\u00e9rst\u00f6\u00f0u mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 anna\u00f0 lagan\u00e1m sem \u00ed bo\u00f0i var h\u00e9rlendis, var frams\u00e6ki\u00f0, krefjandi og al\u00fej\u00f3\u00f0atengt. Eins og \u00ed f\u00e9lagsv\u00edsindunum hefur n\u00e1mi\u00f0 \u00fer\u00f3ast \u00e1 \u00feeim \u00e1ratug sem li\u00f0inn er, en \u00ed \u00f6llum a\u00f0alatri\u00f0um hefur \u00fea\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00fe\u00f3 haldi\u00f0 \u00feeim einkennum sem lagt var upp me\u00f0. S\u00fa s\u00e9rsta\u00f0a sem \u00fear var m\u00f6rku\u00f0 hlaut s\u00ed\u00f0ar vi\u00f0urkenningu \u00ed sk\u00fdrslu \u00fattektarnefndar \u00e1 lagan\u00e1mi \u00e1 \u00cdslandi, sem \u00fat kom \u00ed september 2011, en \u00fear segir me\u00f0al annars a\u00f0 lagadeildin vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3lann \u00e1 Akureyri hafi b\u00e6tt n\u00fdju og \u00e1\u00f0ur vanr\u00e6ktu sj\u00f3narhorni vi\u00f0 l\u00f6gfr\u00e6\u00f0imenntun \u00e1 \u00cdslandi.<a title=\"\" href=\"#_edn7\" name=\"_ednref7\">[7]<\/a><\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">\u00ddmsar n\u00fdjungar einkenndu tilh\u00f6gun og framkv\u00e6md n\u00e1ms vi\u00f0 hina n\u00fdju f\u00e9lagsv\u00edsinda- og lagadeild. M\u00e1 \u00fear nefna lotukennslu \u00ed lagadeild, en h\u00fan ger\u00f0i m\u00f6gulegt a\u00f0 r\u00e1\u00f0a stundakennara sem ekki bjuggu \u00e1 n\u00e6rsv\u00e6\u00f0inu til a\u00f0 kenna um s\u00e9rh\u00e6f\u00f0 efni, og ger\u00f0i nemendum kleift a\u00f0 s\u00f6kkva s\u00e9r \u00ed vi\u00f0fangsefni hvers n\u00e1mskei\u00f0s \u00e1n truflunar fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum n\u00e1msgreinum. Ennfremur ber a\u00f0 nefna s\u00edmatskerfi\u00f0 sem hefur veri\u00f0 eitt a\u00f0alsmerki f\u00e9lagsv\u00edsinda- og lagan\u00e1msins alla t\u00ed\u00f0 og s\u00e9\u00f0 til \u00feess a\u00f0 nemendur eru s\u00edfellt hvattir \u00e1fram og f\u00e1 reglulega endurgj\u00f6f. Al\u00fej\u00f3\u00f0legur bl\u00e6r hefur einnig r\u00edkt yfir f\u00e9lagsv\u00edsinda- og lagan\u00e1minu, enda dregur \u00fea\u00f0 til s\u00edn langflesta \u00feeirra u.\u00fe.b. 50 erlendu skiptinema sem leggja stund \u00e1 n\u00e1m vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3lann \u00e1 Akureyri \u00e1 \u00e1ri hverju. Loks m\u00e1 geta \u00feess a\u00f0 Mike beitti s\u00e9r \u00e1samt Geir Sigur\u00f0ssyni fyrir stofnun As\u00eduvers \u00cdslands, me\u00f0 formlegu samkomulagi H\u00e1sk\u00f3lans \u00e1 Akureyri og H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands \u00ed desember 2005, en \u00e1 vegum \u00feess var um skei\u00f0 bo\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 n\u00e1m \u00ed k\u00ednversku vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3lann \u00e1 Akureyri.<a title=\"\" href=\"#_edn8\" name=\"_ednref8\">[8]<\/a> S\u00fa starfsemi sem \u00fearna f\u00f3r af sta\u00f0 bar vott um frams\u00fdni Mikes og stendur h\u00fan enn me\u00f0 bl\u00f3ma sem ekki s\u00e9r fyrir endann \u00e1, \u00fe\u00f3tt h\u00fan hafi n\u00fa alfari\u00f0 flust til H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">En svo vi\u00f0 v\u00edkjum aftur a\u00f0 upphafinu \u00fe\u00e1 er fyrsta starfs\u00e1r f\u00e9lagsv\u00edsinda- og lagadeildar \u00ed minningu minni sveipa\u00f0 \u00feeim \u00e6vint\u00fdralj\u00f3ma sem frumkv\u00f6\u00f0lastarf og n\u00fdtt upphaf getur fengi\u00f0 \u00e1 sig. Nemendah\u00f3purinn var eftirminnilegur og me\u00f0vita\u00f0ur um a\u00f0 hann var a\u00f0 feta n\u00fdjar og \u00f3tro\u00f0nar sl\u00f3\u00f0ir. \u00dea\u00f0 sama \u00e1tti vi\u00f0 um kennarana. Mike vildi vanda til mannar\u00e1\u00f0ninga og fara fremur h\u00e6gt \u00ed sakirnar \u00fear, en byggja \u00feess \u00ed sta\u00f0 eftir f\u00f6ngum \u00e1 \u00feeim r\u00edkulegu al\u00fej\u00f3\u00f0atengslum sem hann bj\u00f3 a\u00f0 og f\u00e1 \u00feannig \u00farvals kennara erlendis fr\u00e1 til a\u00f0 dvelja h\u00e9r f\u00e1einar vikur \u00ed einu vi\u00f0 kennslu og nj\u00f3ta um lei\u00f0 \u00feeirrar s\u00e9rst\u00e6\u00f0u fegur\u00f0ar nor\u00f0urhjarans sem h\u00e9r er a\u00f0 finna. \u00deannig sk\u00f6pu\u00f0ust varanleg tengsl H\u00e1sk\u00f3lans \u00e1 Akureyri vi\u00f0 h\u00f3p sl\u00edkra kennara, \u00fear \u00e1 me\u00f0al \u00fe\u00e1 Garrett Barden og Nigel Dower sem h\u00e9r eru staddir \u00ed dag. Tveir fastr\u00e1\u00f0nir starfsmenn h\u00e1sk\u00f3lans fluttust yfir \u00ed f\u00e9lagsv\u00edsinda- og lagadeild vi\u00f0 stofnun hennar, El\u00edn D\u00edanna Gunnarsd\u00f3ttir \u00far heilbrig\u00f0isdeild og undirrita\u00f0ur \u00far kennaradeild. Birgir Gu\u00f0mundsson kom einnig til starfa vi\u00f0 deildina og var s\u00ed\u00f0ar fastr\u00e1\u00f0inn, sem og \u00c1g\u00fast \u00de\u00f3r \u00c1rnason. \u00de\u00e1 var \u00fea\u00f0 miki\u00f0 happ fyrir h\u00e1sk\u00f3lann a\u00f0 fyrsta starfs\u00e1r deildarinnar voru r\u00e1\u00f0in til hennar ung hj\u00f3n sem b\u00e6\u00f0i voru fram\u00farskarandi efnilegir fr\u00e6\u00f0imenn, \u00feau Rachael Johnstone l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingur og Giorgio Baruchello heimspekingur. \u00c1ri\u00f0 eftir b\u00e6ttust \u00ed h\u00f3pinn \u00de\u00f3roddur Bjarnason f\u00e9lagsfr\u00e6\u00f0ingur, sagnfr\u00e6\u00f0ingarnir Markus Meckl og P\u00e1ll Bj\u00f6rnsson og l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingarnir P\u00e9tur Dam Leifsson og Margr\u00e9t Heinreksd\u00f3ttir, auk \u00feess sem mannfr\u00e6\u00f0ingarnir J\u00f3n Haukur Ingimundarson og Joan Nymand Larsen, s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingar \u00e1 Stofnun Vilhj\u00e1lms Stef\u00e1nssonar, ur\u00f0u hlutastarfsmenn. Fleiri hafa s\u00ed\u00f0ar b\u00e6st \u00ed h\u00f3pinn og f\u00e1ir hellst \u00far lestinni, en fullyr\u00f0a m\u00e1 a\u00f0 f\u00e9lagsv\u00edsinda- og lagadeild hafi alla t\u00ed\u00f0 st\u00e1ta\u00f0 af sterkum h\u00f3pi akadem\u00edskra starfsmanna sem lagt hafa miki\u00f0 af m\u00f6rkum til ranns\u00f3kna vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3lann \u00e1 Akureyri.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">Mike var faglegur lei\u00f0togi \u00ed \u00feessum h\u00f3pi, s\u00e1 sem ruddi brautina og s\u00e1 fyrir s\u00e9r hvert skyldi stefna. \u00d3hj\u00e1kv\u00e6milega kom a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 innan starfsmannah\u00f3psins ur\u00f0u sko\u00f0anir skiptar um \u00fer\u00f3un og \u00fatf\u00e6rslu n\u00e1msins, stefnu \u00ed mannar\u00e1\u00f0ningum og fleira. Vi\u00f0 sl\u00edkar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur kom h\u00famor og l\u00e9ttlyndi Mikes s\u00e9r vel, en \u00fe\u00f3 \u00feykist \u00e9g vita a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi ekki reynst honum au\u00f0velt a\u00f0 breg\u00f0ast vi\u00f0 \u00e1greiningi me\u00f0 miklum m\u00e1lami\u00f0lunum og a\u00f0 hann hafi kannski a\u00f0 sumu leyti veri\u00f0 \u00ed svipa\u00f0ri st\u00f6\u00f0u og foreldri sem \u00e1 erfitt me\u00f0 a\u00f0 sleppa hendinni af h\u00e1lfv\u00f6xnum unglingi sem vill fara s\u00ednar eigin lei\u00f0ir. Mike haf\u00f0i helga\u00f0 uppbyggingu deildarinnar krafta s\u00edna og teki\u00f0 vi\u00f0 hana \u00e1stf\u00f3stri, enda var h\u00fan a\u00f0 miklu leyti hans sk\u00f6punarverk. \u00c9g vil ekki gera miki\u00f0 \u00far \u00feessari togstreitu innan starfsmannah\u00f3psins, sem var \u00ed raun e\u00f0lilegur fylgifiskur uppbyggingarinnar og nokku\u00f0 sem h\u00f3purinn haf\u00f0i \u00e1samt Mike alla bur\u00f0i til a\u00f0 \u00feroskast \u00fat \u00far. \u00c1 \u00fea\u00f0 reyndi \u00fe\u00f3 \u00fev\u00ed mi\u00f0ur ekki hva\u00f0 Mike var\u00f0ar, \u00fev\u00ed a\u00f0 eftir \u00ferj\u00fa fyrstu starfs\u00e1rin \u00feurfti deildin a\u00f0 gl\u00edma vi\u00f0 ytri \u00f3gnir \u00ed formi mikillar og \u00f3v\u00e6ginnar kr\u00f6fu um ni\u00f0urskur\u00f0. \u00de\u00e6r a\u00f0ger\u00f0ir sem yfirstj\u00f3rn h\u00e1sk\u00f3lans taldi nau\u00f0synlegt a\u00f0 leggja \u00ed \u00e1 \u00feeim t\u00edma f\u00f3lu \u00ed s\u00e9r of miklar m\u00e1lami\u00f0lanir a\u00f0 mati Mikes, svo a\u00f0 \u00fea\u00f0 var\u00f0 \u00far a\u00f0 me\u00f0 \u00feungum huga l\u00e9t hann af st\u00f6rfum deildarforseta eftir a\u00f0 \u00feriggja \u00e1ra r\u00e1\u00f0ningart\u00edmabilinu lauk og hvarf aftur til pr\u00f3fessorsstarfsins vi\u00f0 H\u00cd.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">Framlag Mikes til H\u00e1sk\u00f3lans \u00e1 Akureyri marka\u00f0i dj\u00fap spor \u00ed s\u00f6gu hans. Um \u00feau m\u00e6tti hafa m\u00f6rg or\u00f0, en \u00e9g mun l\u00e1ta einn vitnisbur\u00f0 n\u00e6gja og hann kemur fram \u00ed or\u00f0um Gu\u00f0mundar \u00c6vars Oddssonar, sem prentu\u00f0 eru \u00ed afm\u00e6lisriti H\u00e1sk\u00f3lans \u00e1 Akureyri sem \u00fat kom \u00e1 s\u00ed\u00f0asta \u00e1ri. Gu\u00f0mundur brautskr\u00e1\u00f0ist me\u00f0 B.A.-pr\u00f3f \u00ed samf\u00e9lags- og hag\u00fer\u00f3unarfr\u00e6\u00f0i fr\u00e1 HA 2006 eftir a\u00f0 hafa \u00e1\u00f0ur loki\u00f0 pr\u00f3fi \u00ed vi\u00f0skiptafr\u00e6\u00f0i og kennslur\u00e9ttindan\u00e1mi og er n\u00fa langt kominn \u00ed doktorsn\u00e1mi \u00ed f\u00e9lagsfr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 Missouri-h\u00e1sk\u00f3la \u00ed Bandar\u00edkjunum. Gu\u00f0mundur l\u00edtur til baka \u00e1 n\u00e1msferil sinn og segir:<\/p>\n<p style=\"text-align: justify; margin-left: 30px;\"><em>\u00a0<\/em><\/p>\n<p style=\"text-align: justify; margin-left: 30px;\"><em>\u00dea\u00f0 er \u00e1 engan halla\u00f0 \u00feegar \u00e9g segi a\u00f0 samf\u00e9lags- og hag\u00fer\u00f3unarfr\u00e6\u00f0in standi upp \u00far \u00fev\u00ed h\u00fan f\u00e6r\u00f0i m\u00e9r heim sanninn um gildi gagnr\u00fdninnar hugsunar \u00ed hv\u00edvetna. Margir a\u00f0rir samverkandi \u00fe\u00e6ttir ger\u00f0u n\u00e1mi\u00f0 haldgott. \u00dea\u00f0 var n\u00fdtt af n\u00e1linni og spennandi. Enginn var fastur \u00ed hj\u00f3lf\u00f6rum vegna \u00feess a\u00f0 \u00feau voru ekki til! \u00dea\u00f0 leyf\u00f0i kennurum sem nemendum a\u00f0 fara \u00f3hef\u00f0bundnar lei\u00f0ir. Ekki skemmdi fyrir a\u00f0 n\u00e1mi\u00f0 var \u00feverfaglegt og \u00fear me\u00f0 sveigjanlegt. Kennarar ger\u00f0u miklar kr\u00f6fur til nemenda og \u00f6fugt. S\u00edmatskerfi\u00f0 h\u00e9lt manni vi\u00f0 efni\u00f0. Umr\u00e6\u00f0ur okkar voru \u00f6grandi, gagnr\u00fdnar og uppl\u00fdsandi. \u00dea\u00f0 sem einkenndi n\u00e1mi\u00f0 \u00fe\u00f3 umfram anna\u00f0 var a\u00f0 flest vorum vi\u00f0 \u00fearna til \u00feess a\u00f0 auka vi\u00f0 \u00feekkingu ekki s\u00ed\u00f0ur en a\u00f0 f\u00e1 stimpli sem opna myndi dyr a\u00f0 v\u00f6lundarh\u00fasi vinnumarka\u00f0arins. Samf\u00e9lags- og hag\u00fer\u00f3unarfr\u00e6\u00f0in var me\u00f0 \u00f6\u00f0rum or\u00f0um v\u00edsir a\u00f0 \u00feekkingarsamf\u00e9lagi. Samf\u00e9lagi \u00fear sem \u00feekkingin er markmi\u00f0 \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r. Skref \u00ed r\u00e9tta \u00e1tt<\/em>.<a title=\"\" href=\"#_edn9\" name=\"_ednref9\">[9]<\/a><\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">\n<p style=\"text-align: justify;\">\u00deessi or\u00f0 Gu\u00f0mundar minna sterkt \u00e1 m\u00edna reynslu af \u00fev\u00ed a\u00f0 vera nemandi Mikes \u00e1 s\u00ednum t\u00edma og h\u00e9r g\u00e6tir \u00e1hrifa hans mj\u00f6g greinilega.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">S\u00fa uppbygging og arfleif\u00f0 sem Mike skildi eftir vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3lann \u00e1 Akureyri hefur vaxi\u00f0 og bl\u00f3mstra\u00f0 \u00e6 s\u00ed\u00f0an. \u00c1ri\u00f0 2008 sameina\u00f0ist f\u00e9lagsv\u00edsinda- og lagadeild kennaradeild og n\u00fa mynda \u00feessar \u00ferj\u00e1r deildir (f\u00e9lagsv\u00edsindadeild, lagadeild og kennaradeild), \u00e1samt mi\u00f0st\u00f6\u00f0 sk\u00f3la\u00fer\u00f3unar, hug- og f\u00e9lagsv\u00edsindasvi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3lans \u00e1 Akureyri. Hug- og f\u00e9lagsv\u00edsindasvi\u00f0i\u00f0 er st\u00e6rsta skipulagseining h\u00e1sk\u00f3lans, me\u00f0 um 700 nemendur, um 60 starfsmenn og fj\u00f3r\u00f0ung af \u00e1rlegri veltu stofnunarinnar. Nemendur f\u00e9lagsv\u00edsindadeildar eru vel \u00e1 fj\u00f3r\u00f0a hundra\u00f0, nemendur lagadeildar um eitt hundra\u00f0 og fastir starfsmenn \u00feessara tveggja deilda til samans \u00e1 \u00feri\u00f0ja tug.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">\u00dea\u00f0 m\u00e1 \u00fev\u00ed me\u00f0 sanni segja a\u00f0 vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3lann \u00e1 Akureyri s\u00e1\u00f0i Mike fr\u00e6jum sem n\u00fa bl\u00f3mstra, r\u00e9tt eins og hann haf\u00f0i \u00e1\u00f0ur vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands s\u00e1\u00f0 fr\u00e6jum heimspekii\u00f0kunar, sem b\u00e1ru me\u00f0al annars \u00fe\u00e1 \u00e1vexti sem fl\u00edka\u00f0 var \u00e1 Mikj\u00e1lsmessunni fyrir t\u00edu \u00e1rum. Framlag hans \u00e1 b\u00e1\u00f0um svi\u00f0um er \u00f3metanlegt. \u00dea\u00f0 var \u00fev\u00ed miki\u00f0 happ fyrir \u00edslenskt menntakerfi a\u00f0 Mike skyldi fyrir fj\u00f6rut\u00edu \u00e1rum hafa veri\u00f0 h\u00e9r \u00e1 fer\u00f0alagi og fyrir tilviljun n\u00e1\u00f0 spjalli vi\u00f0 \u00fe\u00e1 P\u00e1l Sk\u00falason og \u00deorstein Gylfason, sem umsvifalaust fengu hann til kennslu vi\u00f0 n\u00fdstofna\u00f0a og l\u00edtt m\u00f3ta\u00f0a n\u00e1msbraut \u00ed heimspeki vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands.<\/p>\n<p style=\"text-align: justify;\">\u00dea\u00f0 sem dr\u00f3 Mike til \u00cdslands upphaflega mun hafa veri\u00f0 \u00e1hugi hans \u00e1 land- og jar\u00f0fr\u00e6\u00f0i. Hann haf\u00f0i \u00e1huga \u00e1 \u00feessari s\u00e9rst\u00e6\u00f0u eldfjallaeyju \u00ed nor\u00f0urh\u00f6fum sem enn var \u00ed m\u00f3tun, hr\u00e1, ung og full af \u00f3beislu\u00f0um krafti. \u00deetta umhverfi dr\u00f3 til s\u00edn ungan eldhuga sem hugna\u00f0ist a\u00f0 m\u00f3ta og skapa eitthva\u00f0 sem \u00e1\u00f0ur haf\u00f0i ekki veri\u00f0 til. Hann stendur n\u00fa \u00e1 sj\u00f6tugu, enn\u00fe\u00e1 ungur, enn\u00fe\u00e1 eldhuga og me\u00f0 h\u00famorinn \u00ed lagi. Honum er \u00f3h\u00e6tt a\u00f0 nj\u00f3ta \u00feess l\u00edta um \u00f6xl me\u00f0 stolti og \u00e1n\u00e6gju og \u00e9g vona a\u00f0 or\u00f0 m\u00edn ver\u00f0i honum hvatning til \u00feess. En \u00ed dag \u00e6tlum vi\u00f0 a\u00f0 halda upp \u00e1 \u00e1fangann me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hugsa me\u00f0 Mike um heimspekileg efni, eins og vi\u00f0 h\u00f6fum gert svo oft \u00e1\u00f0ur, \u00fear \u00e1 me\u00f0al efni sem honum er s\u00e9rstaklega hugleiki\u00f0 um \u00feessar mundir, en \u00fea\u00f0 er spurningin \u201ehva\u00f0 er si\u00f0fer\u00f0i?\u201c \u00dev\u00ed fyrr sem \u00e9g h\u00e6tti a\u00f0 tala, \u00fev\u00ed fyrr kemst hann a\u00f0 me\u00f0 sitt upphafserindi um \u201esi\u00f0as\u00fapuna\u201c og \u00e9g veit a\u00f0 \u00e9g er ekki einn um a\u00f0 hlakka mj\u00f6g til a\u00f0 heyra \u00fea\u00f0. \u00c9g vil \u00fev\u00ed me\u00f0 innilegum hamingju\u00f3skum til Mikes me\u00f0 sj\u00f6tugsafm\u00e6li\u00f0, og d\u00fdpstu \u00fe\u00f6kkum fyrir framlag hans til \u00edslenskrar heimspeki og til H\u00e1sk\u00f3lans \u00e1 Akureyri, lj\u00faka m\u00e1li m\u00ednu og gefa honum sj\u00e1lfum or\u00f0i\u00f0.<\/p>\n<div><br clear=\"all\" \/><\/p>\n<hr align=\"left\" size=\"1\" width=\"33%\" \/>\n<div style=\"text-align: justify;\">\n<p><a title=\"\" href=\"#_ednref1\" name=\"_edn1\">[1]<\/a> Kristj\u00e1n Kristj\u00e1nsson og Logi Gunnarsson (ritstj.), <i>Heimspekimessa: Ritger\u00f0ir handa Mikael M. Karlssyni pr\u00f3fessor sextugum<\/i>. Reykjav\u00edk: H\u00e1sk\u00f3la\u00fatg\u00e1fan, 2003.<\/p>\n<\/div>\n<div style=\"text-align: justify;\">\n<p><a title=\"\" href=\"#_ednref2\" name=\"_edn2\">[2]<\/a> Nigel Dower, Huglei\u00f0ingar um ritger\u00f0 P\u00e1ls Sk\u00falasonar. <i>Heimspekimessa<\/i>, bls. 37-40; 37.<\/p>\n<\/div>\n<div style=\"text-align: justify;\">\n<p><a title=\"\" href=\"#_ednref3\" name=\"_edn3\">[3]<\/a> Ritaskr\u00e1 Mikaels M. Karlssonar. <i>Heimspekimessa<\/i>, bls. 277-298.<\/p>\n<\/div>\n<div style=\"text-align: justify;\">\n<p><a title=\"\" href=\"#_ednref4\" name=\"_edn4\">[4]<\/a> Logi Gunnarsson, N\u00e1tt\u00fara og nau\u00f0synleg gildi: F\u00e1ein or\u00f0 um heimspeki Mikaels M. Karlssonar. <i>Heimspekimessa<\/i>, bls. 17-28.<\/p>\n<\/div>\n<div style=\"text-align: justify;\">\n<p><a title=\"\" href=\"#_ednref5\" name=\"_edn5\">[5]<\/a> Birgir Gu\u00f0mundsson, El\u00edn D\u00edanna Gunnarsd\u00f3ttir og P\u00e1ll Bj\u00f6rnsson, F\u00e9lagsv\u00edsindadeild, \u00ed Bragi Gu\u00f0mundsson (ritstj.) <i>H\u00e1sk\u00f3linn \u00e1 Akureyri 1987-2012: Afm\u00e6lisrit<\/i>. Akureyri: V\u00f6lusp\u00e1 og H\u00e1sk\u00f3linn \u00e1 Akureyri, 2012, bls. 135-156.<\/p>\n<\/div>\n<div style=\"text-align: justify;\">\n<p><a title=\"\" href=\"#_ednref6\" name=\"_edn6\">[6]<\/a> \u00c1g\u00fast \u00de\u00f3r \u00c1rnason, Lagadeild, <i>H\u00e1sk\u00f3linn \u00e1 Akureyri 1987-2012: Afm\u00e6lisrit<\/i>, bls. 156-168.<\/p>\n<\/div>\n<div style=\"text-align: justify;\">\n<p><a title=\"\" href=\"#_ednref7\" name=\"_edn7\">[7]<\/a> <i>Evaluation of Teaching and Study of Law in Icelandic Higher Education Institutions<\/i>. Reykjav\u00edk: Mennta- og menningarm\u00e1lar\u00e1\u00f0uneyti, 2011.<\/p>\n<\/div>\n<div style=\"text-align: justify;\">\n<p><a title=\"\" href=\"#_ednref8\" name=\"_edn8\">[8]<\/a> H\u00e1sk<i>\u00f3linn \u00e1 Akureyri 1987-2012: Afm\u00e6lisrit<\/i>, bls. 142.<\/p>\n<\/div>\n<div>\n<p style=\"text-align: justify;\"><a title=\"\" href=\"#_ednref9\" name=\"_edn9\">[9]<\/a> <i>H\u00e1sk\u00f3linn \u00e1 Akureyri 1987-2012: Afm\u00e6lisrit, <\/i>bls. 140.<\/p>\n<\/div>\n<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p style=\"text-align: justify;\">Mikael M. Karlsson, Professor of philosophy at the University of Iceland, has left a deep mark in the history of philosophy in Iceland as well as the history of the University of Akureyri. As a teacher of philosophy, he has for 40 years opened new paths for his students, both in thought and action. As a scholar, he has written a good number of outstanding works that are systematically connected. As an academic citizen, he has been active in establishing international relations, and he was an effective pioneer and leader as the first Dean of the Faculty of law and social sciences at the University of Akureyri. In that role, he laid the foundation for a vibrant academic community with an international flavor.<\/p>\n","protected":false},"author":352,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_exactmetrics_skip_tracking":false,"_exactmetrics_sitenote_active":false,"_exactmetrics_sitenote_note":"","_exactmetrics_sitenote_category":0,"footnotes":""},"categories":[58],"tags":[725],"coauthors":[1261],"class_list":["post-259","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-c64-conference-paper","tag-mikael-m-karlsson-university-of-akureyri-philosophy-in-iceland"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/259","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/users\/352"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=259"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/259\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1299,"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/259\/revisions\/1299"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=259"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=259"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=259"},{"taxonomy":"author","embeddable":true,"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/coauthors?post=259"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}