{"id":18119,"date":"2022-12-28T18:46:02","date_gmt":"2022-12-28T18:46:02","guid":{"rendered":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/?p=18119"},"modified":"2022-12-29T10:18:18","modified_gmt":"2022-12-29T10:18:18","slug":"breytt-heimsmynd-og-nordurslodir","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/volume-17-no-4-2022\/breytt-heimsmynd-og-nordurslodir\/","title":{"rendered":"Breytt heimsmynd og nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0ir"},"content":{"rendered":"\n\n\n\t<div class=\"dkpdf-button-container\" style=\" text-align:right \">\n\n\t\t<a class=\"dkpdf-button\" href=\"\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/18119?pdf=18119\" target=\"_blank\"><span class=\"dkpdf-button-icon\"><i class=\"fa fa-file-pdf-o\"><\/i><\/span> <\/a>\n\n\t<\/div>\n\n\n\n\n\n<h5><a href=\"http:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-content\/uploads\/2022\/12\/albert-jonsson.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignnone wp-image-18156\" src=\"http:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-content\/uploads\/2022\/12\/albert-jonsson-223x300.jpg\" alt=\"\" width=\"155\" height=\"209\" srcset=\"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-content\/uploads\/2022\/12\/albert-jonsson-223x300.jpg 223w, https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-content\/uploads\/2022\/12\/albert-jonsson.jpg 260w\" sizes=\"auto, (max-width: 155px) 100vw, 155px\" \/><\/a><\/h5>\n<h5 style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><strong><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #262626;\">Albert J\u00f3nsson, al\u00fej\u00f3\u00f0astj\u00f3rnm\u00e1lafr\u00e6\u00f0ingur og fyrrverandi sendiherra<\/span><\/strong><\/h5>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><b><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #262626;\">\u00a0<\/span><\/b><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #262626;\">Vaxandi l\u00edkur eru taldar \u00e1 a\u00f0 br\u00e1\u00f0nun haf\u00edss \u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0um af v\u00f6ldum hl\u00fdnunar Jar\u00f0ar lei\u00f0i til \u00feess &#8211; eftir mi\u00f0ja \u00f6ldina &#8211; a\u00f0 Nor\u00f0ur-\u00cdshaf opnist fyrir siglingar. \u00dea\u00f0 mundi au\u00f0vita\u00f0 breyta heimsmyndinni \u00ed grundvallaratri\u00f0um. Og Nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0ir yr\u00f0u n\u00e1tengdar umheiminum &#8211; og al\u00fej\u00f3\u00f0akerfinu.\u00a0<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #262626;\">Al\u00fej\u00f3\u00f0akerfi\u00f0 hefur \u00feegar breyst me\u00f0 afgerandi h\u00e6tti og heimsmyndin me\u00f0. H\u00e9r \u00e1 \u00e9g vi\u00f0 hvernig str\u00fakt\u00far al\u00fej\u00f3\u00f0akerfisins hefur \u00fer\u00f3ast; n\u00e1nar tilteki\u00f0 a\u00f0 K\u00edna er or\u00f0i\u00f0 anna\u00f0 mesta st\u00f3rveldi heims \u00e1 eftir Bandar\u00edkjunum og n\u00e1lgast \u00feau \u00e1 flestum m\u00e6likv\u00f6r\u00f0um.\u00a0<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #262626;\">Str\u00fakt\u00far al\u00fej\u00f3\u00f0akerfisins\u00a0og hl\u00fdnun Jar\u00f0ar\u00a0eru\u00a0lykil\u00fe\u00e6ttir\u00a0\u00feegar horft er til nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0a n\u00e6stu \u00e1ratugi. Hl\u00fdnunin af auglj\u00f3sum \u00e1st\u00e6\u00f0um. &#8211; Str\u00fakt\u00farinn af \u00fev\u00ed hann kn\u00fdr st\u00f3rveldap\u00f3lit\u00edk. \u2014\u00a0\u00a0\u00cd \u00fev\u00ed efni skiptir mestu har\u00f0nandi samkeppni \u00ed As\u00edu og \u00e1 heimsv\u00edsu milli Bandar\u00edkjanna og K\u00edna &#8211; samkeppni sem ver\u00f0ur r\u00e1\u00f0andi \u00fe\u00e1ttur \u00ed al\u00fej\u00f3\u00f0am\u00e1lum \u00e1 \u00f6ldinni.\u00a0<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #262626;\">\u00cd stuttu erindi um st\u00f3rt m\u00e1l \u00e6tla \u00e9g \u00ed fyrri hluta a\u00f0 fjalla um nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0ir og breytta heimsmynd &#8211; a\u00f0allega \u00fat fr\u00e1 str\u00fakt\u00far og st\u00f3rveldahagsmunum. \u00cd seinni hluta erindisins r\u00e6\u00f0i \u00e9g um \u00dakr\u00e6nustr\u00ed\u00f0i\u00f0 og aflei\u00f0ingar \u00feess fyrir nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0ir.<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #262626;\">Hl\u00fdnun Jar\u00f0ar hefur \u00feegar leitt til \u00feess a\u00f0 nor\u00f0urlei\u00f0in svonefnda &#8211; siglingalei\u00f0 me\u00f0fram nor\u00f0urstr\u00f6nd R\u00fasslands &#8211; er n\u00fa f\u00e6r milli Atlantshafs og Kyrrahafs s\u00ed\u00f0sumars og fram eftir hausti &#8211; en m\u00f6guleikar \u00e1 henni eru takmarka\u00f0ir. Svo a\u00f0 hagkv\u00e6mar siglingar st\u00f3rra tankskipa og g\u00e1maflutningaskipa g\u00e6tu hafist um nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0ir \u00feyrfti Nor\u00f0ur-\u00cdshafi\u00f0 a\u00f0 opnast fyrir siglingar yfir nor\u00f0urskauti\u00f0. \u00dear me\u00f0 yr\u00f0i til stysta siglingalei\u00f0 milli Atlantshafs og Kyrrahafs &#8211; milli As\u00edu og Evr\u00f3pu &#8211; svonefnd\u00a0<i>nor\u00f0urskautslei\u00f0<\/i>.\u00a0<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #262626;\">Vaxandi l\u00edkur eru taldar \u00e1 a\u00f0 lei\u00f0in opnist um mi\u00f0ja \u00f6ldina en jafnframt \u00e1liti\u00f0 l\u00edklegt a\u00f0 einhver t\u00edmi l\u00ed\u00f0i eftir \u00fea\u00f0 \u00feanga\u00f0 til \u00cdshafi\u00f0 ver\u00f0i f\u00e6rt \u00e1ri\u00f0 um kring. \u00dea\u00f0 mun au\u00f0vita\u00f0 opna st\u00f3rkostlega m\u00f6guleika og snerta n\u00e1i\u00f0 hagsmuni margra r\u00edkja var\u00f0andi siglingar, orku og fiskvei\u00f0ar.\u00a0<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #262626;\">Og Evr\u00f3-Atlantshafssv\u00e6\u00f0i\u00f0, \u00fear sem \u00feungami\u00f0ja al\u00fej\u00f3\u00f0akerfisins var um aldir, mun tengjast\u00a0um\u00a0nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0ir vi\u00f0 hina\u00a0n\u00fdju\u00a0\u00feungami\u00f0ju al\u00fej\u00f3\u00f0akerfisins &#8211; sem liggur \u00e1 As\u00edu-Kyrrahafssv\u00e6\u00f0inu.\u00a0<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #0e0e0e;\">Gera m\u00e1 r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 al\u00fej\u00f3\u00f0ap\u00f3lit\u00edskur og herna\u00f0arlegur a\u00f0dragandi \u00feessara breytinga hefjist \u00ed alv\u00f6ru \u00e1 n\u00e6stu 10-20 \u00e1rum. Almennur al\u00fej\u00f3\u00f0legur \u00e1hugi \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu er \u00feegar mj\u00f6g vaxandi vegna siglinga \u00fear \u00ed framt\u00ed\u00f0inni. Og b\u00e6\u00f0i st\u00f3rveldin &#8211; K\u00edna og Bandar\u00edkin &#8211; horfa til nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0a\u00a0\u00a0&#8211; vegna samkeppninnar \u00feeirra \u00ed milli og aukins a\u00f0gengis a\u00f0 sv\u00e6\u00f0inu \u00ed kj\u00f6lfar \u00feess a\u00f0 haf\u00edsinn h\u00f6rfar.\u00a0<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><i><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #0e0e0e;\">Bandar\u00edsk stj\u00f3rnv\u00f6ld<\/span><\/i><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #0e0e0e;\">\u00a0hafa \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rum m\u00f3ta\u00f0 stefnu um nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0ir \u00fear sem fram kemur me\u00f0al annars a\u00f0 Bandar\u00edkjaher l\u00edti \u00e1 \u00fe\u00e6r sem m\u00f6gulegan vettvang fyrir vaxandi st\u00f3rveldasamkeppni. Nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0ir f\u00e1i me\u00f0 br\u00e1\u00f0nun haf\u00edssins mikla \u00fe\u00fd\u00f0ingu fyrir \u00fej\u00f3\u00f0ar\u00f6ryggi\u00f0 \u00fev\u00ed \u00fe\u00e6r tengi Kyrrahaf og Atlantshaf og opni n\u00fdjar lei\u00f0ir a\u00f0 Nor\u00f0ur-Amer\u00edku. Auk \u00feess a\u00f0 gera r\u00e1\u00f0stafanir til a\u00f0 tryggja framt\u00ed\u00f0arhagsmuni Bandar\u00edkjahers \u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0um \u00feurfi a\u00f0 hefta m\u00f6guleika K\u00edna\u00a0og\u00a0R\u00fasslands til a\u00f0 nota \u00fe\u00e6r \u00ed herna\u00f0arlegum tilgangi gegn Bandar\u00edkjunum.<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #0e0e0e;\">Bandar\u00edkjafloti er enn vanb\u00fainn til umsvifa \u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0um \u00e1ri\u00f0 um kring af \u00fev\u00ed hann vantar s\u00e9rstaklega styrkt herskip til \u00feess. \u00deegar eru hins vegar \u00e1\u00e6tlanir \u00ed gangi um fj\u00f6lgun \u00edsbrj\u00f3ta. Flotinn hefur haldi\u00f0 \u00fati kjarnorkukn\u00fanum kafb\u00e1tum \u00ed Nor\u00f0ur-\u00cdshafi fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00ed lok sj\u00f6tta \u00e1ratugarins &#8211; og fyrir \u00feann t\u00edma l\u00e1gu fer\u00f0ir langdr\u00e6gra bandar\u00edskra sprengjuflugv\u00e9la og nj\u00f3snaflugv\u00e9la \u00fear um og gera \u00e1fram. \u00de\u00e1 hafa nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0ir lykil\u00fe\u00fd\u00f0ingu fyrir loftvarnir Nor\u00f0ur-Amer\u00edku. Loks er r\u00e9tt a\u00f0 nefna a\u00f0 Alaska gerir Bandar\u00edkin a\u00f0 st\u00f3ru nor\u00f0urssl\u00f3\u00f0ar\u00edki me\u00f0 mikla hagsmuni \u00feess vegna &#8211; til vi\u00f0b\u00f3tar \u00fej\u00f3\u00f0ar\u00f6ryggishagsmunum.<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><i><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #0e0e0e;\">K\u00ednverja<\/span><\/i><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #0e0e0e;\">r\u00a0hafa auki\u00f0 umsvif s\u00edn \u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0um en n\u00e6stum alfari\u00f0 \u00e1 nor\u00f0urstr\u00f6nd R\u00fasslands vegna ol\u00edu- og gasvinnslu &#8211; en \u00ed \u00feeim efnum eru \u00feeir st\u00f3rir fj\u00e1rfestar og st\u00e6rstu kaupendurnir. \u00deeir taka \u00fe\u00e1tt \u00ed starfi Nor\u00f0urskautsr\u00e1\u00f0sins og hafa unni\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0ar\u00edki til \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00ed Belti og braut-fj\u00e1rfestinga\u00e1\u00e6tluninni, sem \u00fe\u00e1 er k\u00f6llu\u00f0 Silkilei\u00f0 nor\u00f0ursins. Loks hafa \u00feeir stunda\u00f0 \u00fdmsa v\u00edsindastarfsemi \u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0um.dg<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #0e0e0e;\">K\u00ednverjar eiga tvo \u00edsbrj\u00f3ta sem b\u00e1\u00f0ir hafa siglt um nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0ir og \u00e6tla a\u00f0 sm\u00ed\u00f0a fleiri og st\u00e6rri sl\u00edk skip. Ekki er kunnugt um k\u00ednverska herna\u00f0arlega starfsemi \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu hinga\u00f0 til en k\u00ednverski flotinn hefur hratt vaxandi getu til a\u00f0 athafna sig \u00e1 fjarl\u00e6gum sl\u00f3\u00f0um.\u00a0<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #0e0e0e;\">K\u00ednverskir herna\u00f0ars\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingar horfa \u00feegar til \u00feess a\u00f0 me\u00f0 minnkandi haf\u00eds megi halda Bandar\u00edkjaher uppteknum vi\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0um a\u00f0 breg\u00f0ast vi\u00f0 athafnasemi k\u00ednverska flotans \u00fear og um lei\u00f0 veikja Bandar\u00edkjaher annarssta\u00f0ar. \u00de\u00e1 er tali\u00f0 a\u00f0 til \u00feess komi a\u00f0 K\u00ednverjar haldi \u00fati eldflaugakafb\u00e1tum \u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0um til a\u00f0 auka \u00f6ryggi kjarnorkuhersins.<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #0e0e0e;\">Hryggjarstykki \u00ed kjarnorkuher\u00a0<i>R\u00fassa<\/i>\u00a0er \u00ed eldflaugakafb\u00e1tum Nor\u00f0urflotans, en \u00feeim er a\u00f0allega haldi\u00f0 \u00fati \u00ed Barentshafi fr\u00e1 st\u00f6\u00f0vum \u00e1 Kolaskaga \u00ed nor\u00f0vestur R\u00fasslandi. A\u00f0 verja kafb\u00e1tanna eru forgangshlutverk flotans. Ennfremur eru flugvellir \u00e1 Kolaskaga fyrir langdr\u00e6gar sprengjuflugv\u00e9lar. \u00c1 undanf\u00f6rnum t\u00edu \u00e1rum\u00a0\u00a0hafa R\u00fassar endurbyggt og teki\u00f0 \u00ed notkun flugvelli og a\u00f0rar st\u00f6\u00f0var \u00e1 Nor\u00f0ur \u00cdshafssv\u00e6\u00f0inu sem bygg\u00f0ar voru \u00ed kalda str\u00ed\u00f0inu og einnig endurn\u00fdja\u00f0 orrustuflugsveitir \u00fear. Mikilv\u00e6gi Nor\u00f0urflotans hefur aukist\u00a0verulega \u00e1 undanf\u00f6rnum \u00e1rum \u00ed kj\u00f6lfar \u00feess a\u00f0 \u00ed vopnab\u00farinu eru n\u00fdjar langdr\u00e6gar st\u00fdriflaugar sem dr\u00e6gju til skotmarka \u00ed Evr\u00f3pu fr\u00e1 kafb\u00e1tum e\u00f0a herskipum \u00ed heimah\u00f6fum flotans og til Nor\u00f0ur Amer\u00edku fr\u00e1 \u00cdshafinu.<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #0e0e0e;\">Herna\u00f0arlegur vi\u00f0b\u00fana\u00f0ur R\u00fassa \u00ed nor\u00f0ri \u00e1 s\u00e9r a\u00f0 verulegu leyti sk\u00fdringar \u00ed \u00fev\u00ed feiknast\u00f3ra haf- og landsv\u00e6\u00f0i og miklu efnahagslegu hagsmunum sem \u00feeir eiga \u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0um r\u00edkisins. \u00dear er a\u00f0 finna afar miki\u00f0 af ol\u00edu og gasi og einnig af m\u00e1lmum og kolum. \u00deessar au\u00f0lindir eru lykilatri\u00f0i \u00ed \u00e1\u00e6tlunum um hagv\u00f6xt \u00ed R\u00fasslandi n\u00e6stu \u00e1ratugi. \u00de\u00e1 hefur n\u00fdja siglingalei\u00f0in \u00fati fyrir nor\u00f0urstr\u00f6ndinni auglj\u00f3st mikilv\u00e6gi a\u00f0 \u00feessu leyti fyrir R\u00fassland enda er h\u00fan n\u00e1tengd \u00fej\u00f3\u00f0ar\u00f6ryggi \u00ed augum stj\u00f3rnvalda.<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #0e0e0e;\">Af \u00f6llu \u00feessu m\u00e1 sj\u00e1 a\u00f0 r\u00edkar\u00a0forsendur eru fyrir st\u00f3raukinn athafnasemi Bandar\u00edkjanna, K\u00edna og R\u00fasslands \u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0um \u00feegar haf\u00edsinn h\u00f6rfar &#8211; \u00fear \u00e1 me\u00f0al herna\u00f0arlegum umsvifum. Og herir fleiri r\u00edkja en st\u00f3rveldanna \u00feriggja munu au\u00f0vita\u00f0 birtast einnig \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu \u00fe\u00f3 \u00ed miklu minni m\u00e6li ver\u00f0i en hj\u00e1 hinum.<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #0e0e0e;\">\u00a0<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #0e0e0e;\">Eftir a\u00f0 R\u00fassar innlimu\u00f0u Kr\u00edm 2014 og h\u00f3fu jafnframt \u00edhlutun \u00ed \u00e1t\u00f6k \u00ed austurhluta\u00a0<i>\u00dakr\u00e6nu<\/i>\u00a0leiddu versnandi samskipti R\u00fasslands og NATO til aukinna herna\u00f0arumsvifa \u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0um &#8211; \u00fe\u00f3 ekki til neinna st\u00f3rra breytinga \u00ed \u00fev\u00ed efni. &#8211; Og allt til innr\u00e1sarinnar \u00ed \u00dakr\u00e6nu \u00ed lok febr\u00faar s\u00ed\u00f0astli\u00f0inn &#8211; h\u00e9lt \u00e1fram samstarf allra nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0ar\u00edkjanna \u00e1 vettvangi Nor\u00f0urskautsr\u00e1\u00f0sins\u00a0\u00a0&#8211; og \u00fea\u00f0 \u00fer\u00e1tt fyrir har\u00f0nandi deilur vegna \u00dakr\u00e6nu og \u00fevingunar- og refsia\u00f0ger\u00f0ir gegn R\u00fasslandi.\u00a0<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #0e0e0e;\">Me\u00f0 stofnun Nor\u00f0urskautsr\u00e1\u00f0sins fyrir tuttugu og sex \u00e1rum var gripi\u00f0 t\u00e6kif\u00e6ri sem gafst eftir\u00a0kalda str\u00ed\u00f0i\u00f0 til a\u00f0 hefja al\u00fej\u00f3\u00f0asamstarf um m\u00e1lefni nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0a.\u00a0R\u00e1\u00f0i\u00f0 beindi sj\u00f3num a\u00f0 hagsmunum \u00edb\u00faa sv\u00e6\u00f0isins \u00e1 svi\u00f0i loftslagsm\u00e1la, mengunarm\u00e1la, l\u00edffr\u00e6\u00f0ilegs fj\u00f6lbreytileika og m\u00e1lefna hafsins. R\u00e1\u00f0i\u00f0 var\u00f0 vettvangur fyrir samstarf, samr\u00e6mingu og samr\u00e1\u00f0 um \u00feessi m\u00e1l milli r\u00edkisstj\u00f3rna, frumbyggja og annarra \u00edb\u00faa sv\u00e6\u00f0isins.\u00a0<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #0e0e0e;\">\u00de\u00f3tt Nor\u00f0urskautsr\u00e1\u00f0i\u00f0 v\u00e6ri fremur samstarfsvettvangur\u00a0en stofnun leiddi starfsemin til \u00feess a\u00f0 m\u00e1lefni nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0a voru stofnanav\u00e6dd &#8211; a\u00f0 segja m\u00e1. \u00dea\u00f0 var\u00f0 til skipulag og skrifstofa fyrir framkv\u00e6mdastj\u00f3rn. En einnig \u00fer\u00f3a\u00f0ist sameiginlegur skilningur \u00e1 \u00feeim hagsmunum sem l\u00e6gju undir, og sameiginleg markmi\u00f0 og norm ur\u00f0u til.\u00a0<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #0e0e0e;\">\u00cd upphafi var \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 herna\u00f0arleg \u00f6ryggism\u00e1l yr\u00f0u ekki \u00fe\u00e1ttur \u00ed starfsemi Nor\u00f0urskautsr\u00e1\u00f0sins, enda mundu \u00feau trufla hana.\u00a0\u00deannig var\u00f0 til vi\u00f0mi\u00f0 &#8211; og norm \u00ed framhaldinu &#8211; sem f\u00f3l \u00ed s\u00e9r a\u00f0 b\u00e6gja \u00e6tti fr\u00e1 r\u00e1\u00f0inu deilum og \u00e1rekstrum a\u00f0ildarr\u00edkja \u00feess. Ennfremur var\u00f0 til markmi\u00f0, sem \u00f6ll a\u00f0ildarr\u00edkin l\u00fdstu stu\u00f0ningi vi\u00f0. &#8211; \u00dea\u00f0 var a\u00f0 halda nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0um sem\u00a0\u201cl\u00e1gspennusv\u00e6\u00f0i\u201d\u00a0eins og sagt var.\u00a0\u00a0<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #0e0e0e;\">Og deilum var b\u00e6gt fr\u00e1 samstarfinu. \u00cd \u00e1tta \u00e1r eftir a\u00f0 samskipti R\u00fasslands og Vesturlanda snarversnu\u00f0u vegna Kr\u00edmskaga og \u00dakr\u00e6nu sinnti Nor\u00f0urskautsr\u00e1\u00f0i\u00f0 hlutverki s\u00ednu \u00f3trufla\u00f0 af s\u00edhar\u00f0nandi deilum.\u00a0\u00a0&#8211; \u00dea\u00f0 er ekki \u00far vegi a\u00f0 benda \u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 ger\u00f0i einnig Hringbor\u00f0 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0a.\u00a0<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #0e0e0e;\">\u00cd kj\u00f6lfar innr\u00e1sarinnar \u00ed \u00dakr\u00e6nu var\u00f0 Nor\u00f0urskautsr\u00e1\u00f0i\u00f0 hins vegar \u00f3starfh\u00e6ft &#8211; \u00dea\u00f0 er &#8211; a\u00f0 svo st\u00f6ddu &#8211; alvarlegasta og afdrifar\u00edkasta aflei\u00f0ing innr\u00e1sarinnar fyrir nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0ir.\u00a0\u00a0Markmi\u00f0 um nor\u00f0usl\u00f3\u00f0ir sem l\u00e1gspennusv\u00e6\u00f0i l\u00e6tur undan s\u00edga. Flj\u00f3tlega eftir innr\u00e1sina l\u00fdstu \u00f6nnur a\u00f0ildarr\u00edki en R\u00fassland sameiginlega yfir a\u00f0 vegna innr\u00e1sarinnar mundu \u00feau h\u00e6tta a\u00f0 s\u00e6kja fundi r\u00e1\u00f0sins. A\u00f0 auki hafa a\u00f0ildarr\u00edki \u00feess h\u00e6tt tv\u00edhli\u00f0a v\u00edsindasamstarfi vi\u00f0 R\u00fassa um nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0ir.\u00a0<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #0e0e0e;\">En hva\u00f0 me\u00f0 a\u00f0rar\u00a0aflei\u00f0ingar innr\u00e1sarinnar fyrir nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0ir?\u00a0\u00a0&#8211; J\u00fa, h\u00fan hefur leitt til \u00feess a\u00f0 tv\u00f6 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0ar\u00edki, Finnland og Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0, hafa s\u00f3tt um a\u00f0ild a\u00f0 NATO. H\u00fan mundi efla bandalagi\u00f0 herna\u00f0arlega \u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0um -og valda \u00fev\u00ed reyndar einnig a\u00f0 \u00f6ll Nor\u00f0urskautsr\u00e1\u00f0sr\u00edkin ver\u00f0a NATO r\u00edki, nema R\u00fassland au\u00f0vita\u00f0.<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #0e0e0e;\">Innr\u00e1sin og str\u00ed\u00f0i\u00f0 \u00ed \u00dakr\u00e6nu hafa ekki leitt til aukinna herna\u00f0arlegra\u00a0umsvifa \u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0um \u2013 hvorki af h\u00e1lfu NATO n\u00e9 R\u00fasslands. \u00dea\u00f0 stafar einkum af \u00fev\u00ed a\u00f0\u00a0\u00a0nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0ir hafa sem fyrr strateg\u00edska herna\u00f0ar\u00fe\u00fd\u00f0ingu. \u00cd\u00a0\u00a0\u00fev\u00ed felst a\u00f0 \u00fear eru sta\u00f0ir sem eru mikilv\u00e6gir fyrir f\u00e6lingar- og herna\u00f0arstefnu b\u00e6\u00f0i NATO og R\u00fasslands \u00e1 meginlandi Evr\u00f3pu &#8211; og sta\u00f0ir sem skipta m\u00e1li fyrir kjarnorkujafnv\u00e6gi\u00f0 milli Bandar\u00edkjanna og R\u00fasslands.\u00a0<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: black;\">\u00dak\u00e6nustr\u00ed\u00f0i\u00f0 snertir ekki \u00feessa sta\u00f0i og mun ekki gera nema \u00fea\u00f0 lei\u00f0i til \u00feess a\u00f0 stefni \u00ed anna\u00f0 str\u00ed\u00f0 &#8211; \u00fea\u00f0 er milli NATO og R\u00fasslands. Meginspurning er \u00fev\u00ed hvort \u00e1t\u00f6kin \u00ed \u00dakr\u00e6nu kunni a\u00f0 stigmagnast \u00ed \u00e1t\u00f6k NATO og R\u00fasslands. Stutta svari\u00f0 &#8211; sem \u00e9g \u00fearf a\u00f0 l\u00e1ta n\u00e6gja h\u00e9r t\u00edmans vegna &#8211; er a\u00f0 sl\u00edk stigm\u00f6gnun er ekki \u00fatiloku\u00f0, en \u00f3l\u00edkleg.<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: black;\">Fremur l\u00edtil herna\u00f0arleg umsvif \u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0um eftir innr\u00e1sina \u00ed \u00dakr\u00e6nu er \u00ed takti vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem veri\u00f0 hefur. Hins vegar m\u00e1 b\u00faast vi\u00f0 a\u00f0 herna\u00f0arleg umsvif eigi eftir a\u00f0 aukast\u00a0\u00e1 sv\u00e6\u00f0inu &#8211; jafnvel verulega. Af h\u00e1lfu NATO ver\u00f0i \u00fea\u00f0 gert til a\u00f0 undirstrika mikilv\u00e6gi nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0a fyrir bandalagi\u00f0, s\u00fdna herna\u00f0argetu \u00fear og \u00e6fa og \u00fej\u00e1lfa vi\u00f0 krefjandi a\u00f0st\u00e6\u00f0ur.<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: black;\">N\u00fa er tali\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 muni taka m\u00f6rg \u00e1r a\u00f0 byggja upp r\u00fassneska herinn \u00e1 n\u00fd eftir manntj\u00f3n og hergagnatj\u00f3n, sem hann hefur or\u00f0i\u00f0 fyrir \u00ed \u00dakr\u00e6nu &#8211; sem og a\u00f0 laga \u00fe\u00e1 m\u00f6rgu og alvarlegu veikleika sem hrj\u00e1 herinn og str\u00ed\u00f0i\u00f0 hefur afhj\u00fapa\u00f0. Aflei\u00f0ing alls \u00feessa ver\u00f0ur v\u00e6ntanlega mun minni h\u00e6tta \u00e1 \u00e1t\u00f6kum milli NATO og R\u00fasslands \u00e1 meginlandi Evr\u00f3pu &#8211; og \u00fear me\u00f0 \u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0um.\u00a0<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: black;\">\u00d6nnur aflei\u00f0ing ver\u00f0ur s\u00fa a\u00f0 b\u00faast m\u00e1 vi\u00f0 a\u00f0 kjarnorkuvopn Nor\u00f0urflotans og \u00f6ryggi \u00feeirra f\u00e1i enn meira v\u00e6gi en \u00e1\u00f0ur &#8211; me\u00f0al annars til a\u00f0 undirstrika a\u00f0 R\u00fassland s\u00e9 \u00e1fram st\u00f3rveldi \u00fer\u00e1tt fyrir \u00e1f\u00f6llin \u00ed \u00dakr\u00e6nu. Herna\u00f0arleg \u00fe\u00fd\u00f0ing nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0a fyrir R\u00fassland fari me\u00f0 \u00f6\u00f0rum or\u00f0um vaxandi\u00a0vegna \u00dakr\u00e6nustr\u00ed\u00f0sins.\u00a0\u00a0Efnahagslegt mikilv\u00e6gi eykst einnig.<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: black;\">Ol\u00edu-, gas- og kolan\u00e1muvinnsla \u00ed nor\u00f0ur-R\u00fasslandi hefur veri\u00f0 langst\u00e6rsta\u00a0efnahagsm\u00e1l \u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0um\u00a0og st\u00f3rar \u00e1\u00e6tlanir uppi \u00ed \u00feeim efnum &#8211; sem fyrr sag\u00f0i. \u00devingunar og refsisa\u00f0ger\u00f0ir \u00ed kj\u00f6lfar hern\u00e1ms Kr\u00edmar og n\u00fa innr\u00e1sarinnar \u00ed \u00dakr\u00e6nu hafa leitt til \u00feess a\u00f0 frekari uppbygging ol\u00edu- og gasvinnslu er \u00ed \u00f3vissu vegna \u00feess a\u00f0 ekki f\u00e6st nau\u00f0synlegur t\u00e6knib\u00fana\u00f0ur til \u00feeirra hluta fr\u00e1 Vesturl\u00f6ndum.<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: black;\">\u00c1 hinn b\u00f3ginn m\u00e1 telja l\u00edkur \u00e1 a\u00f0 R\u00fassar f\u00e1i &#8211; \u00feegar fram \u00ed s\u00e6kir &#8211; aukinn stu\u00f0ning vi\u00f0 \u00fer\u00f3un ol\u00edu- og gasvinnslu \u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0um fr\u00e1 k\u00ednverskum\u00a0fyrirt\u00e6kjum. K\u00ednverjar eru \u00feegar mj\u00f6g st\u00f3rir kaupendur a\u00f0 r\u00fassneskri ol\u00edu og gasi og eiga eftir a\u00f0 ver\u00f0a enn st\u00e6rri, me\u00f0al annars vegna \u00dakr\u00e6nustr\u00ed\u00f0sins. Bandalag K\u00edna og R\u00fasslands gegn Bandar\u00edkjunum ver\u00f0ur enn n\u00e1nara en \u00e1\u00f0ur vi\u00f0 \u00feetta. Bandalagi\u00f0 mun birtast \u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0um me\u00f0al annars \u00feannig &#8211; \u00feegar \u00fear a\u00f0 kemur &#8211; a\u00f0 R\u00fassar au\u00f0veldi flota og flugher K\u00edna a\u00f0 athafna sig \u00e1 Nor\u00f0ur-\u00cdshafi.<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: black;\">En hvert ver\u00f0ur framhaldi\u00f0 \u00ed \u00dakr\u00e6nu og \u00ed samskiptum R\u00fasslands og Vesturlanda? F\u00e1ir hafa reynst sp\u00e1mannlega vaxnir um gang m\u00e1la eftir innr\u00e1sina og margir haft rangt fyrir s\u00e9r b\u00e6\u00f0i um frammist\u00f6\u00f0u \u00dakr\u00e6nuhers og bur\u00f0i r\u00fassneska hersins &#8211; \u00f6llu heldur hversu \u00f3bur\u00f0ugur hann hefur reynst. \u00de\u00f3 er gjarnan tali\u00f0 a\u00f0 langvinn \u00e1t\u00f6k s\u00e9u framundan \u00ed \u00dakr\u00e6nu &#8211; misseri, jafnvel einhver \u00e1r.\u00a0Jafnframt eru v\u00edsbendingar um a\u00f0 r\u00fassneski herinn s\u00e9 enn \u00e1 n\u00fd \u00ed \u00f3g\u00f6ngum &#8211; n\u00fa \u00ed austurhlutanum.\u00a0<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: black;\">\u00d3h\u00e1\u00f0 gangi str\u00ed\u00f0sins m\u00e1 b\u00faast vi\u00f0 a\u00f0 eftir a\u00f0 einhverskonar hugsanleg lausn finnist, sem er fjarl\u00e6gari en \u00e1\u00f0ur eftir innlimun fj\u00f6gurra h\u00e9ra\u00f0a \u00ed \u00dakr\u00e6nu \u00ed R\u00fassland, l\u00ed\u00f0i langur t\u00edmi \u00e1\u00f0ur en samskipti NATO og R\u00fasslands lagist a\u00f0 einhverju marki. \u00c1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0um er br\u00fdnt a\u00f0 starfsemi Nor\u00f0urskautsr\u00e1\u00f0ins ver\u00f0i endurvakin og stofnanav\u00e6\u00f0ing haldi \u00e1fram, en hven\u00e6r forsendur g\u00e6tu skapast til \u00feess er me\u00f0 \u00f6llu \u00f3lj\u00f3st um \u00feessar mundir.<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: black;\">Bandal\u00f6g og \u00e1takal\u00ednur hafa sk\u00fdrst \u00ed kj\u00f6lfar innr\u00e1sarinnar \u00ed \u00dakr\u00e6nu og aflei\u00f0ingar \u00feess munu sj\u00e1st \u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0um. Hins vegar &#8211; og r\u00e9tt a\u00f0 leggja \u00e1herslu \u00e1 \u00fea\u00f0 &#8211; var allt\u00a0\u00fatlit fyrir a\u00f0 str\u00fakt\u00far al\u00fej\u00f3\u00f0akerfisins og hl\u00fdnun\u00a0Jar\u00f0ar\u00a0&#8211; lykil\u00fe\u00e6ttirnir sem \u00e9g leiddi fram \u00ed byrjun erindisins &#8211; mundu \u00f3h\u00e1\u00f0 \u00f6\u00f0ru &#8211; lei\u00f0a til samkeppni st\u00f3rvelda \u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0um sem haf\u00edsinn h\u00f6rfa\u00f0i. Har\u00f0nandi samkeppni Bandar\u00edkjanna og K\u00edna \u00ed As\u00edu og \u00e1 heimsv\u00edsu mundi birtast \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu.<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><i><span style=\"font-size: 14.0pt; color: black;\">Ni\u00f0ursta\u00f0a<\/span><\/i><span style=\"font-size: 14.0pt; color: black;\">\u00a0m\u00edn um breytta heimsmynd og nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0ir er \u00fev\u00ed \u00ed meginatri\u00f0um eftirfarandi: &#8211; Str\u00fakt\u00far\u00a0al\u00fej\u00f3\u00f0akerfisins hefur breyst me\u00f0 afgerandi h\u00e6tti og heimsmyndin me\u00f0 og heimsp\u00f3lit\u00edkin. Gangi sp\u00e1r eftir og Nor\u00f0ur-\u00cdshaf opnast breytist heimsmyndin \u00ed grundvallaratri\u00f0um af v\u00f6ldum hl\u00fdnunar Jar\u00f0ar. Nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0ir tengjast n\u00e1i\u00f0 al\u00fej\u00f3\u00f0akerfinu \u00fear \u00e1 me\u00f0al \u00feungami\u00f0ju \u00feess og \u00e1takal\u00ednum \u00e1 As\u00edu-Kyrrahafssv\u00e6\u00f0inu.\u00a0<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: black;\">Undirb\u00faningur mun hefjast \u00ed alv\u00f6ru fyrir siglingar um Nor\u00f0ur-\u00cdshaf milli As\u00edu-Kyrrahafs og Evr\u00f3-Atlanthafssv\u00e6\u00f0isins og nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0ir munu \u00feannig snerta efnahagslega hagsmuni fj\u00f6lda r\u00edkja. \u00ddmsir m\u00f6guleikar skapast \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu fyrir nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0ar\u00edki og \u00edb\u00faa \u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0um og \u00feeim t\u00e6kif\u00e6rum munu au\u00f0vita\u00f0 fylgja b\u00e6\u00f0i kostir og gallar.\u00a0\u00a0<\/span><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: black;\">\u00c1 \u00feessu stigi &#8211; um og upp \u00far mi\u00f0ri \u00f6ldinni &#8211; m\u00e1 v\u00e6nta \u00feess a\u00f0 heimsp\u00f3lit\u00edkin hafi skila\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 fullu \u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0ir og \u00ed besta falli \u00f3v\u00edst a\u00f0 \u00fe\u00e1 ver\u00f0i \u00fe\u00e6r l\u00e1gspennusv\u00e6\u00f0i.\u00a0<\/span><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><em><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #262626;\">Albert J\u00f3nsson, al\u00fej\u00f3\u00f0astj\u00f3rnm\u00e1lafr\u00e6\u00f0ingur og fyrrverandi sendiherra<\/span><\/em><\/p>\n<p style=\"margin: 0cm 0cm 7.5pt 0cm;\"><span style=\"font-size: 14.0pt; color: #262626;\">Vaxandi l\u00edkur eru taldar \u00e1 a\u00f0 br\u00e1\u00f0nun haf\u00edss \u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0um af v\u00f6ldum hl\u00fdnunar Jar\u00f0ar lei\u00f0i til \u00feess &#8211; eftir mi\u00f0ja \u00f6ldina &#8211; a\u00f0 Nor\u00f0ur-\u00cdshaf opnist fyrir siglingar. \u00dea\u00f0 mundi au\u00f0vita\u00f0 breyta heimsmyndinni \u00ed grundvallaratri\u00f0um. Og Nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0ir yr\u00f0u n\u00e1tengdar umheiminum &#8211; og al\u00fej\u00f3\u00f0akerfinu.\u00a0<\/span><\/p>\n","protected":false},"author":659,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_exactmetrics_skip_tracking":false,"_exactmetrics_sitenote_active":false,"_exactmetrics_sitenote_note":"","_exactmetrics_sitenote_category":0,"footnotes":""},"categories":[2223,2225],"tags":[2319,2320,2315],"coauthors":[2330],"class_list":["post-18119","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-volume-17-no-4-2022","category-new-article-editor-review-volume-17-no-4-2022","tag-hlynun-jardar","tag-nordur-ishafid","tag-nordurslodir"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/18119","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/users\/659"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=18119"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/18119\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":18192,"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/18119\/revisions\/18192"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=18119"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=18119"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=18119"},{"taxonomy":"author","embeddable":true,"href":"https:\/\/nome.unak.is\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/coauthors?post=18119"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}